Advertisement
Fróðlegt, upplýsandi og gefandi 3ja laugardaga námskeið um Maríu Magdalenu og frumkristinina í umsjá Þórey Ingveldar Guðmundsdóttur. Þórey hefur undanfarin ár hefur ferðast til og um Suður-Frakkland og sótt námskeið um Maríu Magdalenu og m.a. fylgt í fótspor hennar.Þetta námskeið býður m.a. upp á sjónarhorn sem ögrar hefðbundnum túlkunum feðraveldisins og staðsetur Maríu Magdalenu sem lykilpersónu í andlegu samfélagi Jesú.
Fyrirlesari: Þórey Ingveldur Guðmundsdóttir
Hvenær: 08.03, 22.03, og 05.04 frá kl. 11:00 – 14:00, sem er annar hver laugardagur á þessu tímbili.
Heildarverð: 45.000 kr.
Hægt er að mæta í eitt skipti. Verð fyrir eitt skipti: 20.000 kr.
Hádegisnarl er innifalið:
Námskeiðið skiptist í 3 hluta sem verða eftirfarandi:
Fyrsti hluti verður 08.03.2025:
Í þessum hluta verður skoðuð komu Maríu Magdalenu til Frakklands og tengsl hennar við sögu Katara og Templara einnig sem rætt verður um Svörtu Madonnurnar.
Annar og þriðji hluti verða 22.03.2025 og 05.04.2025.
Í þessum hlutum verður farið yfir guðspjall Maríu Magdalenu sem fannst undir lok 19. aldar í Kairó, um það bil 50 árum áður en hin frægu Nag Hammadi handrit fundust. Stuðst verður við bók Jean–Yves Leloup um guðspjall Maríu Magdalenu, bók Karen L. King um guðspjallið, the Nag Hammadi handritin og bókina The Gospel of the Beloved Companion sem byggir á Maríu guðspjallinu eftir Jehanne De Quillan. Jafnframt verður rýnt í hlutverk Maríu Magdalenu í frumkristni sem; postuli postulanna, bersynduga konan, konan sem smurði Jesú, einsetukonan í Frakklandi, hin helga brúður og heilari.
Takmörkuð pláss í boði.
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Óðinsgata 1, 101 Reykjavík, Iceland, Óðinsgata 1, 101 Reykjavíkurborg, Ísland,Reykjavík, Iceland
Tickets