Advertisement
Tinna gusar á fullu tungli í Sækoti þann 3. mars kl.18:00 og 20:00Við ætlum að njóta saman yfir þrjár töfrandi lotur í hitanum þar sem við leyfum tónlistinni að hreyfa við okkur og kælum svo á milli í sjónum eða undir beru lofti.
Þetta verður einstakt kvöld undir fullu tungli í merki Meyjunnar og við sækjum mjúka og nærandi orku í náttúruna á þessu fulla tungli. Einkunnarorð Meyjunnar eru jörð, öryggi, vinnusemi, vandvirkni og samviskusemi. Við hlustum því meðal annars inn í gott dagskipulag og hugleiðum hvernig góð og heilbrigð rútína í daglegu lífi lítur út fyrir okkur. Við vinnum líka markvisst með að sýna okkur mildi og að senda innri gagnrýnandann í verðskuldað frí. Við erum nefnilega fullkomlega ÓKEI eins og við erum akkúrat núna að lesa þennan texta 🔥
Skráning á BIÐLISTA kl.18:00 er hér:
https://saekot.yogo.dk/frontend/index.html?itemType=class&itemId=2359263#/login-with-cart
Skráning á BIÐLISTA fyrir gusu kl.20:00 er hér:
https://saekot.yogo.dk/frontend/index.html?itemType=class&itemId=2359937#/login-with-cart
Það borgar sig alveg að skrá sig á biðlista því það verða alltaf einhverjar breytingar á hópnum fyrir gusu. Þú færð upplýsingar um hvort þú kemst að sólarhring fyrir gusu. Ef þú kemst ekki að er hægt að fá endurgreitt eða að bóka í aðra gusu.
Ég hlakka til að taka á móti ykkur 🔥
Advertisement
Event Venue
Sækot Sána, Ægisíða 78, 107 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.











