Advertisement
Líkaminn er farartækið þitt í gegnum lífið og það er kominn tími á smurningu.Komdu í Yoga, maður! er námskeið í jóga fyrir karlmenn á öllum aldri og á öllum getustigum. Námskeiðið hentar bæði þeim sem hafa aldrei prófað jóga áður og þeim sem vilja koma sér aftur af stað. Ef þú ert að kljást við stífleika í mjöðmum eða öxlum, aumt bak, kollurinn er að fara með og getur ekki snert á þér tærnar, þá er þetta námskeiðið fyrir þig.
Á námskeiðinu þeggjum við áherslu á hreyfingu í takt við andardráttinn, djúpar teygjur og slökun. Markmiðið er einfalt: að hjálpa þér að verða liðugri, sterkari og stöðugri – Eftir námskeiðið mun þér líka betur bæði í líkama og sál.
Á þremur vikum vinnum við markvisst að því að losa um spennu í líkamanum svo hann verði liðugri og hreyfanlegri. Þegar hreyfigeta líkamans bætist verður auðveldara að byggja upp styrk á öruggan og skilvirkan máta. Æfingarnar ýta þér upp að mörkum þægindarammans þar sem raunverulegur árangur á sér stað og þú átt kost á því að vaxa.
Í lok hvers tíma ferðu í djúpslökun sem hjálpar líkamanum að jafna sig með því að kalla fram algjöra hvíld í líkamanum. Það er endurnærandi upplifun inn að beini sem gerir þér kleift að fara inn í næsta dag og verða besta útgáfan af sjálfum þér.
--------------------------------
3 VIKUR / 6 SKIPTI
2. mars (mán) kl. 20:00-21:30
4. mars (mið) kl. 20:00-21:30
9. mars (mán) kl. 20:00-21:30
11. mars (mið) kl. 20:00-21:30
16. mars (mán) kl. 20:00-21:30
18. mars (mið) kl. 20:00-21:30
--------------------------------
Nánari upplýsingar: www.yogashala.is/komdu-i-yoga-madur
Advertisement
Event Venue
Yoga Shala Reykjavík, Skeifan 7, 108 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.










