Advertisement
Missið ekki af Ég er vindurinn eftir Jon Fosse í flutningi þeirra Ilmar Kristjánsdóttur og Kötlu Margrétar Þorgeirsdóttur. Grátbroslegt þunglyndi úr smiðju norska Nóbelsverðlaunahafans.Við þreyjum þorrann og góuna í Tilboði mánaðarins og norpum með stórleikonunum úti á ballarhafi. Þar upplifum við eðal-norska tilvistarkreppu sem er í eðli sínu stórfyndin – enda er stutt á milli þunglyndis og húmors í verkum Fosse.
Ég er vindurinn er eitt af hans þekktustu verkum. Verkið fjallar um tvo menn, kallaða Einn og Annan, sem sigla á litlum bát langt út á opið haf þar sem kyrrðin og einangrunin magnast upp. Leikritið er ljóðræn hugleiðing um tilvistina, einmanaleika og takmörk tungumálsins; persónurnar reyna að eiga samskipti en orðin ná sjaldnast að fanga dýpt tilfinninga þeirra.
Um Tilboð mánaðarins
Tilboð mánaðarins er leiklestrarröð þar sem okkar skemmtilegasta bransafólk flytur æfða leiklestra einn þriðjudag hvers mánaðar. Listrænir stjórnendur, þær Anna María Tómasdóttir og Gígja Hilmarsdóttir, fá valinkunna listamenn til liðs við sig í hvert skipti – nýtt verk, nýtt fólk, alltaf brakandi ferskt.
Leiklestrarnir eru unnir í samvinnu við Leikminjasafn Íslands. Sigríður Jónsdóttir, sérfræðingur hjá safninu, tekur þátt í umræðum eftir lesturinn og deilir fróðleik um fyrri sýningar með áhorfendum.
Þetta er tilboð sem þú getur hreinlega ekki hafnað!
Advertisement
Event Venue
12 Tjarnargata, 101 Reykjavík, Iceland, Tjarnargata 12, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.











