NAI BARGHOUTI OG HLJÓMSVEIT

Fri Apr 17 2026 at 08:00 pm to 10:00 pm UTC+00:00

Austurbakki 2, 101 Reykjavík, Iceland | Reykjavík

Harpa t\u00f3nlistar- og r\u00e1\u00f0stefnuh\u00fas \/ Harpa Concert Hall and Conference Centre
Publisher/HostHarpa tónlistar- og ráðstefnuhús / Harpa Concert Hall and Conference Centre
NAI BARGHOUTI OG HLJ\u00d3MSVEIT
Advertisement
Mögnuð kvöldstund með palestínsku tónlistarkonunni Nai Barghouti og fjölþjóðlegri hljómsveit hennar í Eldborg í Hörpu. Arabískar tónlistarperlur, afrísk-amerískur jazz, evrópsk klassík og seiðandi ný tónlist Nai sjálfrar í framúrskarandi flutningi. Missið ekki af einstökum tónlistarviðburði. Miðasala hefst mánudaginn 26. janúar.
„Stórkostleg og voldug rödd Nai Barghouti sem er nístandi fögur og býr yfir bæði djúpri sorg og birtu vonarinnar“. (Pitchfork, 2025)
„Tónleikar sem urðu að ákalli eftir friði og mennsku…þar sem rödd Nai Barghouti og hið magnaða ferðalag sem hún bauð okkur í, umbreytti okkur“. (The Jazz Mann, 2025)
--
Palestínska tónlistarkonan Nai Barghouti er rétt tæplega þrítug og hefur vakið athygli víða um heim fyrir einstæða tónlistarhæfileika og söngrödd sem lætur engan ósnortinn. Gagnrýnendur hafa ausið hana lofi fyrir djúpan, persónulegan og afar tjáningarríkan tónlistarflutning, rafmagnaða sviðsframkomu og fágætt samband við hlustendur. Hún byrjaði að koma opinberlega fram á sviði aðeins fjórtán ára gömul og var tvítug útnefnd bjartasta vonin í hollensku tónlistarlífi af hinu virta Concertgebouw-tónlistarhúsi í Amsterdam.
Á tónleikum með Nai Barghouti geta áheyrendur átt von á afar fjölbreyttri efnisskrá þar sem saman fara arabískar tónlistarperlur, afrískur og amerískur jazz, evrópsk klassík og frumsamin tónlist Nai sjálfrar en hún hefur orðið fyrir djúpum áhrifum af söngdívum svo sem hinni egypsku Umm Kulthum og hinni líbönsku Fayrouz og sækir í þeirra brunn. Nai Barghouti hefur sjálf þróað einstakan söngstíl þar sem jazz og arabískar tónlistarhefðir renna saman en hún segist alltaf hafa fundið sterka þræði á milli jazzspunans og tónlistarhefða Vestur-Asíu og Norður-Afríku.
Nai Barghouti hefur sungið og spilað fyrir troðfullum tónleikasölum víða um heim. Má þar nefna tónleika á London Jazz Festival, Edinborgarhátíðina, Theatre de la Ville í París, Elbphilharmonie í Hamborg, Flagey í Brussel, Concertgebouw í Amsterdam, Kennedy Center í Washington, og fjölmarga tónleika í Palestínu, Jórdaníu, Tyrklandi, Marokkó, Túnis, Bretlandi, Bandaríkjunum og víðar. Hún kom fram á Wembley-leikvanginum í Lundúnum í september 2025 á samstöðutónleikum fyrir Palestínu, sem skipulagðir voru af Brian Eno, og flutti og útsetti Vögguvísu (Lullaby) ásamt tónskáldinu Kieran Brunt sem kom út haustið 2025 til stuðnings íbúum á Gaza.
Á tónleikunum í Hörpu kemur Nai fram ásamt fjölþjóðlegri hljómsveit sinni en hana skipa Tony Roe á píanó og hljómborð, Khalil Khoury á qanun, Diego Alva á bassagítar og Ruven Ruppik á trommur og slagverk. Sjálf syngur Nai og leikur á flautu.
Tónleikarnir eru liður í dagskrárstefnu Hörpu um fjölbreytta, fyrsta flokks alþjóðlega tónlistarviðburði.
„Nai Barghouti minnti okkur á hvers tónlistin er megnug og hversu djúp tilfinningaleg áhrif hún getur haft. Hún var ekki einvörðungu að miðla tónlistinni heldur bauð hún okkur að stíga inn í heim sorgar og fegurðar, ástar og þrár, vonar og viðnáms. Og skildi okkur hlustendur að lokum eftir í djúpri geðshræringu“. (The Jazz Mann, 2025)
---
An unforgettable evening with Palestinian musician Nai Barghouti and her multinational quartet at Eldborg in Harpa. The programme weaves together Arabic musical gems, African-American jazz, European classical music, and Nai’s own spellbinding new compositions, all performed with exceptional artistry.
Do not miss this unique musical event. Ticket sales begin on Monday, 26 January 2026.
"Her powerhouse voice... is piercing, clarion, mournful, and hopeful, all at once." (Pitchfork, 2025)
"Attending Nai Barghouti’s concert... was an experience not just of music, but of emotion, storytelling, and a deep, resonant call for peace and humanity. Without understanding Arabic, this, for me, was a concert of sounds and feelings—of being transported by the sheer power of her voice and the evocative journey she crafted through song." (The Jazz Mann, 2025)
The Palestinian musician Nai Barghouti, has attracted international attention for her extraordinary musical talent and a voice that leaves no one untouched. Critics have praised her deeply personal and highly emotional performances, her electrifying stage presence, and her rare connection with audiences. She began performing publicly at the age of fourteen and, at just twenty, was named the brightest hope of the Dutch music scene by the prestigious Concertgebouw in Amsterdam.
At concerts with Nai Barghouti, audiences can expect an exceptionally diverse programme that brings together Arabic music gems, African and American jazz, European classical music, and Nai’s own original compositions. She has been profoundly influenced by legendary vocal divas such as the Egyptian Umm Kulthum and the Lebanese Fayrouz, drawing deeply from their legacy. Nai Barghouti has developed a unique vocal style in which jazz and Arabic musical traditions merge.
Nai Barghouti has sung and performed to sold-out halls around the world, including the London Jazz Festival, the Edinburgh International Festival, Théâtre de la Ville in Paris, the Elbphilharmonie in Hamburg, Flagey in Brussels, the Concertgebouw in Amsterdam, and the Kennedy Center in Washington, as well as numerous concerts in Palestine, Jordan, Turkey, Morocco, Tunisia, the United Kingdom, the United States, and beyond. In September 2025 she appeared at Wembley Stadium in London at a solidarity concert for Palestine organised by Brian Eno, and she performed and arranged Lullaby with composer Kieran Brunt, released in autumn 2025 in support of the people of Gaza.
At Harpa, Nai Barghouti performs with her multinational ensemble: Tony Roe on piano and keyboards, Khalil Khoury on qanun, Diego Alva on bass guitar, and Ruven Ruppik on drums and percussion. Nai herself sings and plays the flute.
"This was more than a concert—it was a testament to the power of music to transcend language and speak directly to the heart. Even without knowing the lyrics, I felt every note, every breath, every emotion that Barghouti poured into her performance. Nai Barghouti did not just perform; she invited us into a world of sorrow and resilience, of longing and love, of history and hope. And in doing so, she left us all profoundly moved."
(The Jazz Mann, 2025)

Advertisement

Event Venue & Nearby Stays

Austurbakki 2, 101 Reykjavík, Iceland, Austurbakki 2, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland

Tickets
Icon
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.

Ask AI if this event suits you:

More Events in Reykjavík

Hatha Yoga Teacher Training with Klara - 100hr Extended Education
Fri, 17 Apr at 05:00 pm Hatha Yoga Teacher Training with Klara - 100hr Extended Education

Yoga Shala Reykjavík

Iceland Social Dance - 17\/19.April 2026
Fri, 17 Apr at 06:30 pm Iceland Social Dance - 17/19.April 2026

Reykjavík City Center

Demolition Man - F\u00f6studagspart\u00eds\u00fdning!
Fri, 17 Apr at 09:00 pm Demolition Man - Föstudagspartísýning!

Hverfisgata 54, 101 Reykjavík, Iceland

Pro Wrestling Boot Camp Iceland 18-19 apr\u00edl 2026
Sat, 18 Apr at 10:30 am Pro Wrestling Boot Camp Iceland 18-19 apríl 2026

Reykjavik MMA

Krakkakl\u00fabburinn Krummi \u2013 Stattu og vertu a\u00f0 steini! Ratleikur \ud83d\udc40
Sat, 18 Apr at 02:00 pm Krakkaklúbburinn Krummi – Stattu og vertu að steini! Ratleikur 👀

Safnahúsið - The House of Collections

Lei\u00f0s\u00f6gn s\u00fdningarstj\u00f3ra | Snertifletir \/ Curator\u2019s Tour | Affinities of Form
Sun, 19 Apr at 02:00 pm Leiðsögn sýningarstjóra | Snertifletir / Curator’s Tour | Affinities of Form

Fríkirkjuvegur 7, 101 Reykjavík, Iceland

B\u00ed\u00f3teki\u00f0: Frankenstein
Sun, 19 Apr at 03:00 pm Bíótekið: Frankenstein

Hverfisgata 54, 101 Reykjavík, Iceland

B\u00ed\u00f3teki\u00f0: Trois Couleurs: Rouge
Sun, 19 Apr at 07:00 pm Bíótekið: Trois Couleurs: Rouge

Hverfisgata 54, 101 Reykjavík, Iceland

Reykjavík is Happening!

Never miss your favorite happenings again!

Explore Reykjavík Events