Mjaðmadans

Thu Feb 27 2025 at 02:00 pm to 02:45 pm UTC+00:00

Dansverkstæðið | Reykjavík

Mja\u00f0madans
Advertisement
MJAÐMADANS - seiðandi og sensjúal
Dans sem:
🌺 Losar um spennu í mjöðmum
🌺 Styrkir og eykur liðleika
🌺 Stuðlar að opnun inn á við
🌺 Eflir leikgleði og sköpun
Námskeiðið byggir á æfingum og hreyfingum sem Íris hefur þróað með árunum sem magadanskennari og kynverukennari.
Á námskeiðinu eru þessar áherslur:
⭐️ Dans og hreyfiflæði ⭐️
Við lærum einföld spor og rútínur og vinnum að því að kynnast OKKAR líkama og hvernig hann vill og þarf að hreyfa sig. Ekkert eitt er rétt og engin sjálfsprottin hreyfing er röng. Hvernig getur þér liðið vel í þínum líkama? Hvað kallar hann á?
⭐️ Leikgleði og húmor ⭐️
Við tökum okkur ekki of alvarlega, við gerum tilraunir, hlæjum og leikum okkur. Förum út fyrir þægindarammann og ögrum okkur. Gerum alls konar hreyfingar, stórar, skrítnar og nýjar hreyfingar og kynnumst okkur sjálfum með forvitni að leiðarljósi.
⭐️ Spennulosun ⭐️
Sagt er að mjaðmirnar geymi áföll, við vinnum að því að losa um, opna og sleppa tökum á því sem líkaminn vill halda í en þarf ekki á að halda. Við gerum teygjur og æfingar til að slaka á psoas vöðvanum sem kallaður er “tilfinninga” vöðvinn og geymir áföll.
⭐️ Liðleiki og styrkur ⭐️
Grindin og hryggjasúlan heldur okkur uppi, við styrkjum okkur og aukum liðleika í kringum grind og hryggjasúlu með fjölbreyttum og skemmtilegum æfingum með það að markmiði að líða betur í líkamanum og bera okkur vel.
___________________
Námskeiðið er haldið á Dansverkstæðinu í sal 2
27. febrúar - 3. apríl
6 skipti á fimmtudögum frá 14.00-14.45
Gott er að vera í fötum sem hefta ekki hreyfingu.
Dansað er á tánum eða sokkum/tátiljum.
Verð námskeiðs er 17.000 ISK
Hægt er að koma í stakan tíma fyrir 3.500 ISK

SKRÁNING FER FRAM HÉR: https://forms.gle/CaV8u23pLiLCQwHJ8
Hafðu samband á [email protected] ef þú vilt koma í stakan tíma eða ef einhverjar spurningar vakna.
____________________
Um Írisi Stefaníu
Íris er sviðslistakona sem hefur unnið mikið með líkama og líf kvenna í verkum sínum. Hún leggur áherslu á unað, tabú, skömm og þrár. Hún hefur meðal annars safnað og gefið út sjálfsfróunarsögur kvenna og haldið söguhringi þar sem sögur sem tengjast efninu eru sagðar. Gert útvarpsleikhúsverk um eldri konur og rétt þeirra til að vera kynverur, verk um konur sem kjósa að eignast ekki börn og verk um náttúruhneigð og unað í fæðingum. Íris hefur dansað magadans í rúm 20 ár og kennir magadans í Kramhúsinu og víðar og vinnur við að kenna dans, leiklist, valdeflingu og tjáningu.
Íris er með BA gráðu í Bókmenntum, MA gráðu í Hagnýtri Menningarmiðlun og MFA gráðu í Sviðslistum. Auk þess hefur hún sótt ótal námskeið, bæði líkamlega og fræðileg, um lífið og tilveruna.
Advertisement

Event Venue & Nearby Stays

Dansverkstæðið, Hjarðarhagi 47, 107 Reykjavíkurborg, Ísland,Reykjavík, Iceland

Discover more events by tags:

Business in Reykjavík

Sharing is Caring:

More Events in Reykjavík

Psychedelics as Medicine Conference
Thu, 27 Feb, 2025 at 08:30 am Psychedelics as Medicine Conference

Harpa Concert Hall and Conference Centre

Psychedel*cs as Medicine 2025
Thu, 27 Feb, 2025 at 09:00 am Psychedel*cs as Medicine 2025

Harpa Concert Hall

Deildafundur b\u00fagreina 2025
Thu, 27 Feb, 2025 at 11:00 am Deildafundur búgreina 2025

Hilton Reykjavík Nordica (Reykjavík, Iceland)

H\u00e1degisfyrirlesur:Birtingamyndir st\u00e9ttaskiptingar me\u00f0al ungmenna \u00ed gegnum sk\u00f3laval til st\u00fadentspr\u00f3fs
Thu, 27 Feb, 2025 at 12:00 pm Hádegisfyrirlesur:Birtingamyndir stéttaskiptingar meðal ungmenna í gegnum skólaval til stúdentsprófs

Þjóðminjasafn Íslands/ National Museum of Iceland

The Art of Architecture - sensing, meditating and communicating immaterial space and material form.
Thu, 27 Feb, 2025 at 12:15 pm The Art of Architecture - sensing, meditating and communicating immaterial space and material form.

Stakkahlíð 1, 105 Reykjavík, Iceland

\u00c1stu\u00feing \u2013 m\u00e1l\u00feing til hei\u00f0urs \u00c1stu Svavarsd\u00f3ttur sj\u00f6tugri
Thu, 27 Feb, 2025 at 01:30 pm Ástuþing – málþing til heiðurs Ástu Svavarsdóttur sjötugri

Edda, Arngrímsgötu 5, IS-107 Reykjavík, Iceland

Skilar samkeppnin okkur samkeppnish\u00e6fu matarver\u00f0i?
Thu, 27 Feb, 2025 at 03:00 pm Skilar samkeppnin okkur samkeppnishæfu matarverði?

Hotel Reykjavik Grand

Pok\u00e9mondagurinn
Thu, 27 Feb, 2025 at 04:00 pm Pokémondagurinn

Menningarhús Spönginni - Borgarbókasafn

H\u00cd og sj\u00e1lfb\u00e6rni: Opinn fundur me\u00f0 rektorsframbj\u00f3\u00f0endum
Thu, 27 Feb, 2025 at 04:00 pm HÍ og sjálfbærni: Opinn fundur með rektorsframbjóðendum

Oddi 101, Háskóla Íslands

M\u00e1lstofa og landsfundarh\u00f3f Landssambands sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0iskvenna
Thu, 27 Feb, 2025 at 04:00 pm Málstofa og landsfundarhóf Landssambands sjálfstæðiskvenna

Vinnustofa Kjarval

Fimmtudagurinn langi \/ Good Thursday
Thu, 27 Feb, 2025 at 05:00 pm Fimmtudagurinn langi / Good Thursday

Fríkirkjuvegur 7, 101 Reykjavík, Iceland

Sl\u00f6kun og Endurheimt: r\u00f3legt n\u00e1mskei\u00f0 me\u00f0 Ur\u00f0i
Thu, 27 Feb, 2025 at 05:00 pm Slökun og Endurheimt: rólegt námskeið með Urði

Skeifan 7,2nd and 3rd floor, 108 Reykjavík, Iceland

Reykjavík is Happening!

Never miss your favorite happenings again!

Explore Reykjavík Events