Advertisement
Miðasalan er hafin á tix.is!Þegar Bríet gaf út sína fyrstu plötu Kveðja, Bríet í október 2020, náði hún ekki bara toppsætum listanna, hún endurskilgreindi hljóðheim heillar kynslóðar. Platan var krýnd sem Plata ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum, sló streymismet og festi hana í sessi sem heillandi nýja rödd þjóðarinnar.
Síðan þá hefur hún unnið ótal verðlaun, safnað yfir 46 milljónum streymum og haldið tónleika víðs vegar um Ísland og erlendis og fengið frábærar undirtektir. Hún hefur fyllt stærstu tónleikarými landsins og sýnt fram á að hún er bæði ein vinsælasta og áhrifamesta tónlistarkona Íslands síðustu ára.
Um myndina
Nú, nær fimm árum síðar, fagnar listakonan þessum áfanga ekki með því að horfa til baka, heldur með því að stíga áfram. Nú 11. október kemur stórbrotin kvikmynd - Minning, sem var fest á 16mm filmu og aðeins á einni myndavél í tilraun til þess að fanga eins trúverðugt augnablik og hægt var. Lokaútkoma myndarinnar er öll afurð fyrstu tilraunar upptöku til að leyfa náttúrulegum mistökum að eiga sér stað.
Myndin var skotin í sumarblíðunni undir Esjunni á Skeggjastöðum í Mosfellsdal, þar sem víðfeðm náttúran og náin stemning mynda einstaka heild. Myndin var tekin upp á filmu og stóðu tökur yfir í 26 klukkutíma. Þetta er síður tónleikamynd heldur frekar ástarkveðja til plötunnar sjálfrar: nostalgísk, sársaukafull og ótrúlega falleg í einfaldleika sínum.
Hörður Freyr Brynjarsson leikstýrði, Stroud Rhode Pearce sá um kvikmyndatöku, Styrmir Hauksson sá um upptökustjórn og hljóðblöndun og tónlistarmennirnir Rubin Pollock, Þorleifur Gaukur Davíðsson, Magnús Trygvason Eliassen og Tómas Jónsson spila undir.
Samhliða frumsýningu myndarinnar gefur Bríet út sérstaka vínylútgáfu áþreifanlegan grip úr hverfandi augnabliki. Platan er takmörkuð í upplagi og inniheldur lifandi hljóðupptöku myndarinnar. Forsala er þegar hafin á brietmusic.com.
Á 5 ára afmæli Kveðja, Bríet, þann 11. október 2025, verður haldin hátíðarsýning í Bíó Paradís.
Miðasalan er hafin á tix.is!
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Bíó Paradís, Hverfisgata 54, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets