Advertisement
Macramé hnýtingar eru einstaklega heilandi, hamingjuaukandi og hugarróandi. Að ekki sé talað um hvað þær eru skemmtilegar og fallegar. Í Hæglætisviku bókasafnsins mun Hera hjá Flóði og fjöru leiða smiðju á Lindasafni þar sem búin verða til litrík macramé lauf og hentar smiðjan fólki á öllum aldri, hvort sem þau eru byrjendur eða reynsluboltar.Takmörkuð sæti í boði. Vinsamlegast skráið ykkur með því að senda póst á [email protected]
Kennari er Hera Sigurðardóttir en hún rekur stúdíóið Flóð og fjöru þar sem framleiddar eru vörur úr textíl, aðallega með macramé hnútaaðferðinni. Hera hefur haldið fjölda námskeiða fyrir fólk á öllum aldri þar sem áherslan er á að virkja huga, hjarta og hönd og eflast við að sjá sín eigin sköpunarverk verða til.
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Núpalind 7, 201 Kópavogsbær, Ísland, Núpalind 7, 201 Kópavogsbær, Ísland,Kópavogur, Kopavogur, Iceland