Advertisement
Námskeiðið hentar bæði þeim sem vilja ná grunnfærni í teikningu ásamt þeim sem hafa bakgrunn í teikningu og vilja læra nýjar aðferðir. Á námskeiðinu verður unnist með skissubækur og mælt er með því að nemendur noti A4 eða A3 skissubók. Það er í lagi að hafa mismunandi stærðir og gerðir af skissubókum með sér.Í hverjum tíma verður mismunandi verkefni tekið fyrir með ólíkum áherslum. Meðal þess sem verður farið yfir í tímunum:
Mismunandi skissutækni og æfingar til að teikna fyrirmyndir og uppstillingar á sem einfaldastan hátt.
Fjarvíddarteikning verður kennd með mismunandi fjölda brennipunkta.
Mismunandi aðferðir við að mæla hlutföll hluta til að teikningin verði sem réttust.
Nemendur fá kynningu á mismunandi efnum eins og kolum, bleki og vatnslitum.
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Garðatorg 7, 210 Garðabær, Iceland, Garðatorg 7, 210 Garðabær, Ísland,Garðabær, Kopavogur, Iceland
Tickets