Advertisement
Þann 30. maí verður dansað í Yogavin á öðru fullu tungli mánaðarins sem að þessu sinni lendir í tvíburamerkinu.
Stundin hefst á mjúkum kakóbolla, stjörnuspeki og stuttum tjáningarhring. Svo verður dansað eftir nokkurs konar öldu sem hefst á hægum takti þar sem unnið verður með jarðtengingu og eigið flæði. Því næst tekur við ákveðnari taktur þar sem við tengjum við innri eldinn, mörkin okkar og viljann. Þar á eftir gefst tækifæri fyrir góðri útrás, hvíld frá huganum og takinu jafnvel sleppt eins og í dynjandi vatnflaumi. Eftir útrásina verður farið inn í léttleika loftsins og dansað og sungið við góð gömul dægurlög ef stemmning er fyrir því. Að lokum hægjum við svo á dansinum í nánd við okkur sjálf í algjörri núvitund á hreyfingu, finnum hvernig líkaminn hreyfist að sjálfu sér og við hverju hefur dansinn hreyft í okkur.
Við endum svo kvöldið með góðri slökun og tónheilun.
Engin fyrri reynsla af dansi nauðsynleg, við dönsum ekki eftir neinum ákveðnum sporum og það þarf ekki einu sinni að dansa vel. Gott er að koma í þægilegum fötum og með vatn í brúsa.
Bergþóra Einarsdóttir er mikill tónlistar- og dansunnandi sem hefur stundað 5 rythma dans og jóga frá árinu 2008.
Hún er spænskufræðingur, jóga -og sérkennari að mennt, með bakgrunn, dansi, ljóðum og tónlist en starfar að öllu jöfnu sem sérkennari í grunnskóla.
Verð: 4900
Ath. Staðfestið endilega komu á [email protected] svo ég geti ákvarðað fjölda bolla.
Advertisement
Event Venue
Yogavin, Grensásvegur 16, 108 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.











