OPNUN | OPENING! Björk: Echolalia & James Merry: Ummyndlingar | Metamorphlings

Sat May 30 2026 at 06:00 pm to 08:00 pm UTC+00:00

Fríkirkjuvegur 7, 101 Reykjavík, Iceland | Reykjavík

Listasafn \u00cdslands \/ National Gallery of Iceland
Publisher/HostListasafn Íslands / National Gallery of Iceland
OPNUN | OPENING! Bj\u00f6rk: Echolalia & James Merry: Ummyndlingar | Metamorphlings
Advertisement
Verið velkomin á opnun sýninganna Echolalia eftir Björk og Ummyndlingar eftir James Merry 30. maí kl. 18 í Listasafni Íslands.
Sýningarnar munu fylla öll fjögur sýningarrými Listasafns Íslands við Tjörnina og eru hluti af Listahátíð í Reykjavík sem opnar einnig 30. maí 2026.
➖ björk: echolalia ➖
Á hálfrar aldar ferli hefur Björk Guðmundsdóttir verið óþreytandi við að þenja hefðbundin mörk tónlistarformsins og í stöðugum tilraunum sínum ofið saman listum, náttúru og tækni.
Þrjár innsetningar veita gestum einstakt tækifæri til að upplifa alltumlykjandi verk sem búa yfir kynngimagnaðri hljóðrænni, sjónrænni og tilfinningalegri dýpt. Tvö þeirra eru tregaljóð, samin og útsett af Björk í minningu móður hennar, og hið þriðja er nýtt verk af væntanlegri plötu Bjarkar.
Í Ancestress er tekist á við hringrás lífsins. Í afskekktum dal birtist okkur eins konar helgiganga tónlistarfólks og dansara. Verkið er samið og útsett af Björk fyrir strengjasveit og slagverk.
Hið pólýfóníska þriggja-kóra-verk Sorrowful Soil er sálumessa þar sem kanón-legar laglínur veltast um á milli radda. Úr þrjátíu hátölörum berast einstaka raddir meðlima Hamrahlíðarkórsins, undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur. Verkið er samið og útsett af Björk fyrir níu radda kór.
Samhliða sýningu Bjarkar stendur yfir sýning James Merry í sal 4, Ummyndlingar, en tvíeikið hefur unnið náið saman í fjölda ára.
--

➖ James Merry: Ummyndlingar ➖
James Merry hefur á síðasta áratug skapað grímur sem eru í raun umbreytingarafl, driffjöður í listgjörningum og gátt að breyttri sjálfsmynd. Í brennipunkti sýningarinnar er augnablikið þegar hamskiptin verða – þegar formið og sjálfið flæða saman. Ummyndlingar er fyrsta yfirlitssýningin á verkum Merrys en þar verða rúmlega áttatíu verk.
Grímurnar bera vitni um einstakt handbragð þar sem blandað er saman hefðbundnum aðferðum og öðrum nýstárlegri; útsaumur, málmsmíði, þrívíddarprentun, silfursmíði og gagnvirk, stafræn verk. Úr verður sveigur síkvikra sköpunarverka er veita okkur djúpstæða innsýn í óbilandi hrifningu Merrys á lífríkinu, sem og áhuga hans á fornleifafræði og fornum helgisiðum.
Margar af grímunum á sýningunni skapaði listamaðurinn fyrir Björk Guðmundsdóttur en þau hafa átt langt samstarf. Á sýningunni verða einnig verk sem unnin hafa verið fyrir aðra listamenn eins og Tildu Swinton og Iris van Herpen. Sum þessara verka hafa áður verið sýnd á listviðburðum og hátískusýningum en hér gefst einstakt tækifæri til að upplifa grímurnar sem sjálfstæð verk.
//
Welcome to the opening of the exhibitions Echolalia by Björk and Metamorphlings by James Merry on May 30 at 6 PM at the National Gallery of Iceland.
The exhibitions will take over all four galleries of the National Gallery of Iceland on Fríkirkjuvegur 7. and are part of the Reykjavík Arts Festival, which also opens on May 30, 2026.
➖ björk: echolalia ➖
The National Gallery of Iceland presents an exhibition of Björk, the visionary musician whose work keeps pushing conventional boundaries, interweaving art, nature, and technology with restless experimentation.
Three songs are presented at the museum on a theatrical scale for the first time – two elegiac works – Ancestress and Sorrowful Soil – composed and arranged by Björk in honour of her mother, are accompanied by a new work derived from the artist’s forthcoming album.
Ancestress reckons with the cyclical nature of life. Set in a remote valley in Iceland, the lamentation is staged as a ritualistic procession of musicians and dancers.
Sorrowful Soil is a 9-part choral work – a requiem where canon-like melodies tumble amongst 3 groups of singers in a polychoral way. Thirty speakers each transmit a single voice from the Hamrahlíð choir, conducted by Þorgerður Ingólfsdóttir.
The exhibition is presented alongside Metamorphlings, an exhibition of James Merry, Björk's long time collaborator, in Gallery 4.
--

➖ James Merry: Metamorphlings ➖
Metamorphlings is the first museum retrospective of the artist’s work. Comprising over 80 artworks, the exhibition offers a window into the evolution of Merry’s artistic output over the past decade. During this time, he has developed a body of work centered on the mask – operating as a conduit for transformation, a catalyst for performance, and a portal through which identity can mutate. The exhibition focuses on the moment of metamorphosis when form and self are fluid.
The masks on view showcase Merry’s craftsmanship, which uniquely blends traditional techniques with contemporary, avant-garde expressions. Visitors encounter works in a
range of mediums: embroidery, metalwork, 3D printing, jewelry, and interactive digital displays. Collectively, these works – the Metamorphlings – form a family of shape shifting creations that can offer a deeper insight into Merry’s unending fascination with the natural world, as well as his abiding interest in archaeology and ancient ritual.
Many of the masks included in the exhibition were created for Björk Guðmundsdóttir as part of their long-standing artistic collaboration.
Advertisement

Event Venue

Fríkirkjuvegur 7, 101 Reykjavík, Iceland, Fríkirkjuvegur 7, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland

Tickets

Icon
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.

Ask AI if this event suits you:

More Events in Reykjavík

\ud83d\udcf8 Vinalegir fundir & lj\u00f3smyndafer\u00f0 \/ Make friends & Photowalk Meetup
Sat, 30 May at 09:30 am 📸 Vinalegir fundir & ljósmyndaferð / Make friends & Photowalk Meetup

Reykjavik (á netinu núna á meðan á ljósmyndakeppnum okkar stendur)

Opnun | Opening:  Karin Sander 1957-2057
Sat, 30 May at 02:00 pm Opnun | Opening: Karin Sander 1957-2057

Tryggvagata 17, 101 Reykjavík, Iceland

Loftv\u00e6gi
Sat, 30 May at 02:44 pm Loftvægi

Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús / Harpa Concert Hall and Conference Centre

Bo\u00f0 fyrir afm\u00e6lisst\u00fadenta fr\u00e1 Menntask\u00f3lanum vi\u00f0 Sund
Sat, 30 May at 03:00 pm Boð fyrir afmælisstúdenta frá Menntaskólanum við Sund

Gnoðarvogur 43, 104 Reykjavík, Iceland

Mahler 8 \u2013 Sinf\u00f3n\u00eduhlj\u00f3msveit \u00cdslands \u00e1 Listah\u00e1t\u00ed\u00f0 \u00ed Reykjav\u00edk
Sat, 30 May at 05:00 pm Mahler 8 – Sinfóníuhljómsveit Íslands á Listahátíð í Reykjavík

Eldborg, Harpa, Austurbakka 2

The Air Between Us
Sat, 30 May at 05:00 pm The Air Between Us

Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús / Harpa Concert Hall and Conference Centre

Lokah\u00f3f HS\u00cd 2026 - Gerum upp t\u00edmabili\u00f0 saman!
Sat, 30 May at 08:00 pm Lokahóf HSÍ 2026 - Gerum upp tímabilið saman!

Austurbæjarbíó

Emmsj\u00e9 Gauti, Vagg & Velta \u00ed 10 \u00e1r
Sat, 30 May at 09:00 pm Emmsjé Gauti, Vagg & Velta í 10 ár

Gamla Bíó

Karin Sander \u00ed samtali vi\u00f0 s\u00fdningarstj\u00f3ra | Artist Talk with Karin Sander
Sun, 31 May at 01:00 pm Karin Sander í samtali við sýningarstjóra | Artist Talk with Karin Sander

Tryggvagata 17, 101 Reykjavík, Iceland

Patti Smith \u00e1samt hlj\u00f3msveit
Sun, 31 May at 08:00 pm Patti Smith ásamt hljómsveit

Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús / Harpa Concert Hall and Conference Centre

WR Reykjav\u00edkurmeistaram\u00f3t F\u00e1ks 2026
Mon, 01 Jun at 09:00 am WR Reykjavíkurmeistaramót Fáks 2026

Víðidalur

Wim Hof Method Iceland Travel
Mon, 01 Jun at 10:00 am Wim Hof Method Iceland Travel

Iceland

Reykjavík is Happening!

Never miss your favorite happenings again!

Explore Reykjavík Events