Advertisement
Hinn árlegi Ljósafoss niður hlíðar Esjunnar mun eiga sér stað laugardaginn 9. nóvember 2024.Á síðasta ári barst Ljósinu liðsstyrkur frá öflugum samstarfsaðila í undirbúningi og framkvæmd Ljósafossins þegar Sjóvá lagði til 1000kr fyrir hvern þann sem gekk af stað á fjallið. Það sama verður upp á teningnum í ár og hvetjum við öll þau sem geta að taka þátt með okkur!
Við hittumst á bílastæðinu við Esjuna kl.15:30 og leggjum af stað klukkan 16:00 upp að Steini. Þaðan munum við svo ganga niður með höfuðljósin kveikt og mynda fallegan Ljósafoss í þann mund sem myrkrið skellur á.
Með þessum skrefum okkar vekjum við athygli á mikilvægi starfsemi Ljóssins sem er endurhæfingarmiðstöð fyrir krabbameinsgreinda og aðstandendur þeirra.
Þorsteinn Jakobsson fjallagarpur leiðir gönguna eins og undanfarin ár og björgunarsveitin Kjölur verður á staðnum.
Við hvetjum alla gönguhópa og fjallagarpa að reima á sig gönguskóna og hjálpa okkur að láta Ljósið skína.
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Mount Esja Reykjavik, Esjustofa, Esjurætur, Esjurætur, 162 Reykjavíkurborg, Ísland,Mosfellsbær, Reykjavík, Iceland