Liza Ferschtman leikur Bach - einleikstónleikar

Fri, 14 Nov, 2025 at 06:00 pm UTC+00:00

Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús / Harpa Concert Hall and Conference Centre | Reykjavík

Sinf\u00f3n\u00eduhlj\u00f3msveit \u00cdslands
Publisher/HostSinfóníuhljómsveit Íslands
Liza Ferschtman leikur Bach - einleikst\u00f3nleikar Hollenski fiðluleikarinn Liza Ferschtman er þekkt fyrir ástríðufullan flutning og góða tengingu við áheyrendur. Hún hefur hlotið mikla athygli og viðurkenningu fyrir einstaka túlkun sína á einleikssónötum Johanns Sebastians Bach og hér tekst hún á við tvö þessara lykilverka barokktímans. Sónötur og partítur meistarans fyrir einleiksfiðlu eru sex talsins og þykja meðal hápunkta fiðlubókmennta í vestrænni tónlistarsögu. Þær voru að öllum líkindum samdar nálægt 1720, þegar Bach var í þjónustu prinsins af Anhalt-Köthen. Þessi ár einkenndust af miklum afköstum Bachs á sviði hljóðfæratónlistar en þá fæddust t.d. svíturnar sex fyrir einleiksselló, fjórar hljómsveitarsvítur og Brandenburgarkonsertarnir sex.
Í verkunum birtist fiðlan okkur sem fjölradda hljóðfæri og hinn þéttofni vefur Bachs gerir oft gríðarlegar kröfur til hljóðfæraleikarans. Lokaþáttur partítunnar sem hér hljómar, Sjakonna, er af mörgum álitin ein mikilfenglegasta tónsmíð sögunnar. Þýska tónskáldið Johannes Brahms skrifaði m.a. um verkið í bréfi til Clöru Schumann: „Á einn nótnastreng, fyrir lítið hljóðfæri ritar maðurinn [Bach] heila veröld af hinum dýpstu hugsunum og sterkustu tilfinningum.
Tónleikarnir eru hluti af Föstudagsröðinni og fara fram í Norðurljósasal Hörpu.
Efnisskrá
Johann Sebastian Bach Sónata nr. 2 í a-moll BWV 1003
Johann Sebastian Bach Partita nr. 2 í d-moll BWV 1004
Einleikari
Liza Ferschtman
//
Dutch violinist Liza Ferschtman is known for her passionate performances and strong connection with her audience. She has received much attention and recognition for her personal interpretation of Johann Sebastian Bach's solo sonatas, and here she tackles two of these key works of the Baroque era. Bach wrote six sonatas and partitas for solo violin and they are considered among the highlights of violin in Western music history. They were composed around the1720, when Bach was in the service of the Prince of Anhalt-Köthen. These years were characterised by Bach's great output in the field of instrumental music, including the six suites for solo cello, four orchestral suites, and the six Brandenburg Concertos
In the pieces, the violin appears as a polyphonic instrument, and Bach's tightly woven texture often makes enormous demands on the instrumentalist. The final movement of the partita, Chaconne, is considered by many to be one of the greatest compositions in history. The German composer Johannes Brahms wrote about the work in a letter to Clara Schumann: "On one stave, for a small instrument, the man [Bach] writes a whole world of the deepest thoughts and strongest feelings."
The concert is a part of the Friday Series and takes place in Norðurljós hall in Harpa.
Program
Johann Sebastian Bach Sonata no. 2 in A Minor
Johann Sebastian Bach Partita no. 2 in D minor
Soloist
Liza Ferschtman

Event Venue

Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús / Harpa Concert Hall and Conference Centre, Austurbakki 2,Reykjavík, Iceland

Icon
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.

Ask AI if this event suits you:

More Events in Reykjavík

R\u00f3sa \u00d3marsd\u00f3ttir - S\u00e9rst\u00e6\u00f0an
Fri, 14 Nov at 07:00 pm Rósa Ómarsdóttir - Sérstæðan

Tjarnarbíó (Reykjavík, Iceland)

Gu\u00f0mundur Steinn Gunnarsson: Steinalda
Fri, 14 Nov at 08:00 pm Guðmundur Steinn Gunnarsson: Steinalda

Óðinsgata 2, 101 Reykjavík, Iceland

J\u00f3n Geir J\u00f3hannsson fimmtugur
Fri, 14 Nov at 08:00 pm Jón Geir Jóhannsson fimmtugur

Austurbæjarbíó

Skyggnil\u00fdsing me\u00f0 \u00c1sthildi og Ragnhildi Sumarli\u00f0ad\u00e6trum.
Fri, 14 Nov at 08:00 pm Skyggnilýsing með Ásthildi og Ragnhildi Sumarliðadætrum.

Skipholt 50d, 105 Reykjavík, Iceland

Rafleikar => RAFLOST+haus
Fri, 14 Nov at 08:00 pm Rafleikar => RAFLOST+haus

Hafnar.Haus

Dance Workshop with Toni & Xanne - Play & Flow
Fri, 14 Nov at 08:00 pm Dance Workshop with Toni & Xanne - Play & Flow

Bildshofði 10, Reykjavík, Iceland

J\u00f3lin \u00e1 su\u00f0upunkti - \u00dej\u00f3\u00f0leikh\u00faskjallarinn
Fri, 14 Nov at 08:30 pm Jólin á suðupunkti - Þjóðleikhúskjallarinn

Þjóðleikhúsið

Back to the Future - F\u00f6studagspart\u00eds\u00fdning!
Fri, 14 Nov at 09:00 pm Back to the Future - Föstudagspartísýning!

Hverfisgata 54, 101 Reykjavík, Iceland

The Vintage Caravan \u2013 Portals \u00fatg\u00e1fut\u00f3nleikar
Fri, 14 Nov at 09:00 pm The Vintage Caravan – Portals útgáfutónleikar

Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús / Harpa Concert Hall and Conference Centre

P\u00e9tur J\u00f3hann | Borgarnes \ud83e\udd21 \ud83c\udfa4
Fri, 14 Nov at 09:00 pm Pétur Jóhann | Borgarnes 🤡 🎤

Grímshús

MAR!A \u00ed 12 t\u00f3num \/ RDF Emerging Double Bill Special
Fri, 14 Nov at 09:00 pm MAR!A í 12 tónum / RDF Emerging Double Bill Special

Skólavörðustígur 15, 101 Reykjavík, Iceland

Charlie Khalil Prince - the body symphonic
Fri, 14 Nov at 09:30 pm Charlie Khalil Prince - the body symphonic

IÐNÓ

Reykjavík is Happening!

Never miss your favorite happenings again!

Explore Reykjavík Events