Leslyndi | Yrsa Sigurðardóttir

Wed Apr 08 2026 at 12:15 pm to 01:00 pm UTC+00:00

Bókasafn Kópavogs | Kopavogur

B\u00f3kasafn K\u00f3pavogs
Publisher/HostBókasafn Kópavogs
Leslyndi | Yrsa Sigur\u00f0ard\u00f3ttir
Advertisement
Glæpasagnadrottningin Yrsa Sigurðardóttir verður gestur í Leslyndi miðvikudaginn 8. apríl kl. 12:15.
Yrsa er einn vinsælasti og þekktasti rithöfundur landsins og hefur um árabil heillað lesendur með spennusögum sínum, sem margar hafa farið sigurför um heiminn og verið þýddar á fjölmörg tungumál. Hún hefur hlotið Blóðdropann þrívegis fyrir bækur sínar Ég man þig, DNA og Bráðina og verið tilnefnd til bæði Blóðdropans og Glerlykilsins, norrænu glæpasagnaverðlaunanna.
Ferill Yrsu hófst þó á barnabókum og fyrir verk sín á því sviði hlaut hún bæði viðurkenningu Barnabókaráðs Íslands og Íslensku barnabókaverðlaunin. Yrsa er byggingatæknifræðingur að mennt og starfar sem slíkur samhliða ritstörfum.
Í Leslyndi ræðir Yrsa um bækurnar sem hafa mótað hana sem lesanda og rithöfund og deilir sínum uppáhaldsbókum með gestum.
-------------
Leslyndi hverfist um yndislestur og uppáhaldsbækur. Þjóðþekktir bókaunnendur stíga á stokk og deila eftirlætishöfundum og bókakveikjum með gestum. Ævintýri og ástarsögur, dagbækur og draumráðningar, sígildar sögur og samtímaverk, orðið er frjálst.
Viðburðaröðin hefur notið mikilla vinsælda og skapað sér fastan sess undanfarin misseri, þegar fólk flykkist að til að sjá hina ýmsu rithöfunda deila með okkur sínum uppáhaldsbókum.
Aðgangur er ókeypis og öll eru hjartanlega velkomin á meðan húsrúm leyfir.
Viðburðurinn er styrktur af menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar.
Advertisement

Event Venue

Bókasafn Kópavogs, Hamraborg 6A, 200 Kópavogsbær, Ísland, Kopavogur, Iceland

Tickets

Icon
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.

Ask AI if this event suits you:

More Events in Kopavogur

Kona \u00e1 buxum | B\u00f3kmenntakl\u00fabburinn Hanan\u00fa!
Wed, 08 Apr at 04:00 pm Kona á buxum | Bókmenntaklúbburinn Hananú!

Bókasafn Kópavogs

Lesi\u00f0 \u00e1 milli l\u00ednanna
Thu, 09 Apr at 03:00 pm Lesið á milli línanna

Bókasafn Kópavogs

Katr\u00edn Halld\u00f3ra | Af fingrum fram
Thu, 09 Apr at 08:30 pm Katrín Halldóra | Af fingrum fram

Hamraborg 6, 200 Kópavogur, Iceland

Hlaupi\u00f0 fyrir P\u00edeta 2026
Sat, 11 Apr at 09:00 am Hlaupið fyrir Píeta 2026

Vífilsstaðavatn

Syngjum um d\u00fdrin \u00e1 Lindasafni!
Sat, 11 Apr at 01:00 pm Syngjum um dýrin á Lindasafni!

Bókasafn Kópavogs

Allar lei\u00f0ir liggja til Par\u00edsar | T\u00edbr\u00e1
Sun, 12 Apr at 01:30 pm Allar leiðir liggja til Parísar | Tíbrá

Hamraborg 6, 200 Kópavogur, Iceland

Kopavogur is Happening!

Never miss your favorite happenings again!

Explore Kopavogur Events