Kona á buxum | Bókmenntaklúbburinn Hananú!

Wed Apr 08 2026 at 04:00 pm to 05:30 pm UTC+00:00

Bókasafn Kópavogs | Kopavogur

B\u00f3kasafn K\u00f3pavogs
Publisher/HostBókasafn Kópavogs
Kona \u00e1 buxum | B\u00f3kmenntakl\u00fabburinn Hanan\u00fa!
Advertisement
Auður Styrkársdóttir verður gestur okkar á Bókasafni Kópavogs og í bókmenntaklúbbnum Hananú og segir okkur frá bók sinni Kona á buxum: Nokkrar furður úr ævi Þuríðar formanns.
Viðburðurinn er hluti af verkefninu LÆSI Á STÖÐU OG BARÁTTU KVENNA | Samstarfsverkefni almenningsbókasafna um land allt í tilefni Kvennaárs 2025
Bókasafnasjóður veitti styrk til verkefnisins.
Heimildaskáldsaga um Þuríði formann á Stokkseyri sem varð strax á barnsaldri dugandi sjómaður og gekk uppkomin á buxum. Hún fór ótroðnar slóðir og varð fræg fyrir að koma óvænt upp um illræmda glæpamenn í Flóanum. Höfundur sem á sér langa sögu í heimi fræða hefur kafað djúpt í heimildir um Þuríði sem um tíma gekk undir nafninu Þormóður.Hegri! hrópar Þuríður og bendir til lands.
Bátsverjar líta upp en hætta samt ekki sínum taktfasta róðri. Þeir sjá allir það sama: stór, gráhvítur fugl goppar í fjöruborði. Hann breiðir út langa vængi eins og hann ætli að hefja sig til flugs, leggjalangur og álappalegur. Svo heggur hann niður sínum langa og beitta goggi í æti. Hegri í fjöru er lukkumerki fyrir fiskimenn; hann boðar gott fiskiár, góða vertíð.
Mennirnir róa áfram og nú svolítið og dálítið léttari í bragði.
Þuríður litla sýnist ætla að verða þeim til lukku. Það er gott að hafa kvenfólk á skipi; það góða fólk færir mönnum góðan afla. Það vita allir.
Auður Styrkársdóttir starfaði sem blaðamaður, ritstjóri og kennari, var lengi forstöðukona Kvennasögusafns Íslands en kallar sig nú pensjónista. Árið 2019 sendi hún frá sér bókina Helga saga sem vakti mikla athygli. Hér skáldar hún í sögu Þuríðar formanns sem gekk á buxum og kom óvænt upp um illræmda glæpamenn í Flóanum.
_______________________________________________________________
Bókmenntaklúbburinn Hananú! hittist í Huldustofu á 3. hæð aðalsafns.
Annan hvern miðvikudag hittist á bókasafninu fremur siðprúður hópur fólks og ræðir hinar fögru orðlistir. Komið bara og gangið í bæinn, tölum um bækur – og Hananú!
Fylgist með í Facebook-hópnum Bókmenntaklúbburinn Hananú | Bókasafn Kópavogs.
Advertisement

Event Venue

Bókasafn Kópavogs, Hamraborg 6A,Kópavogur, Kopavogur, Iceland

Tickets

Icon
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.

Ask AI if this event suits you:

More Events in Kopavogur

Leslyndi | Yrsa Sigur\u00f0ard\u00f3ttir
Wed, 08 Apr at 12:15 pm Leslyndi | Yrsa Sigurðardóttir

Bókasafn Kópavogs

T\u00f3nlistarn\u00e6ring \u00de\u00f3rgunnar \u00d6nnu og Bjargar Brj\u00e1nsd\u00f3ttur
Wed, 08 Apr at 12:15 pm Tónlistarnæring Þórgunnar Önnu og Bjargar Brjánsdóttur

Tónlistarskóli Garðabæjar

Lesi\u00f0 \u00e1 milli l\u00ednanna
Thu, 09 Apr at 03:00 pm Lesið á milli línanna

Bókasafn Kópavogs

Katr\u00edn Halld\u00f3ra | Af fingrum fram
Thu, 09 Apr at 08:30 pm Katrín Halldóra | Af fingrum fram

Hamraborg 6, 200 Kópavogur, Iceland

Hlaupi\u00f0 fyrir P\u00edeta 2026
Sat, 11 Apr at 09:00 am Hlaupið fyrir Píeta 2026

Vífilsstaðavatn

Syngjum um d\u00fdrin \u00e1 Lindasafni!
Sat, 11 Apr at 01:00 pm Syngjum um dýrin á Lindasafni!

Bókasafn Kópavogs

Allar lei\u00f0ir liggja til Par\u00edsar | T\u00edbr\u00e1
Sun, 12 Apr at 01:30 pm Allar leiðir liggja til Parísar | Tíbrá

Hamraborg 6, 200 Kópavogur, Iceland

Hva\u00f0 er kyn? - Erf\u00f0afr\u00e6\u00f0i, \u00feroskun og l\u00edffr\u00e6\u00f0i kynbundinna einkenna
Wed, 15 Apr at 12:15 pm Hvað er kyn? - Erfðafræði, þroskun og líffræði kynbundinna einkenna

Náttúrusafn Kópavogs

Kopavogur is Happening!

Never miss your favorite happenings again!

Explore Kopavogur Events