Leslyndi með Guðmundi Andra Thorssyni

Wed Feb 05 2025 at 12:15 pm to 01:00 pm UTC+00:00

Bókasafn Kópavogs | Kopavogur

MEK\u00d3 - Menning \u00ed K\u00f3pavogi
Publisher/HostMEKÓ - Menning í Kópavogi
Leslyndi me\u00f0 Gu\u00f0mundi Andra Thorssyni
Advertisement
Leslyndi hverfist um yndislestur og uppáhaldsbækur. Þjóðþekktir bókaunnendur stíga á stokk og deila eftirlætishöfundum og bókakveikjum með gestum. Ævintýri og ástarsögur, dagbækur og draumráðningar, sígildar sögur og samtímaverk, orðið er frjálst.
Guðmundur Andri Thorsson, rithöfundur, mætir á Bókasafn Kópavogs í febrúarbyrjun og fjallar um nokkrar bækur sem hafa skilið eftir spor.
Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin á meðan húsrúm leyfir.
Viðburðurinn er styrktur af menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar.
---
Guðmundur Andri Thorsson fæddist í Reykjavík 31. desember 1957. Hann er íslenskufræðingur frá Háskóla Íslands og hefur skrifað fjölda bóka af ýmsu tagi. Einnig hefur hann fengist við pistlaskrif í dagblöð, þáttagerð í útvarpi, þýðingar og tónlist, sinnt ritstjórn bóka og yfirlestri og að auki hlaut hann kjör til Alþingis árið 2017 og sat þar til 2021.
Fyrsta skáldsaga Guðmundar Andra, Mín káta angist, kom út 1988 og þótti slá nýjan tón í íslenskum bókmenntum, en höfundurinn er ekki síst dáður fyrir stílfimi, hlýju og næmi gagnvart breyskum sögupersónum sínum.
Meðal annarra bóka hans má nefna skáldsögurnar Íslenska drauminn frá 1991 og Sæmd frá 2013 og minningabókina Og svo tjöllum við okkur í rallið frá 2015, þar sem hann skrifar kringum ljósmyndir af föður sínum, rithöfundinum Thor Vilhjálmssyni. Sú bók var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs en áður hafði önnur bók Guðmundar Andra, sagnasveigurinn Valeyrarvalsinn frá 2011, einnig verið tilnefnd til sömu verðlauna.
Valeyrarvalsinn er sú bók höfundarins sem víðast hefur farið og hefur til að mynda komið út í Frakklandi, Þýskalandi, Englandi, Danmörku og Ísrael við góðar undirtektir. Nýjasta bók hans, Synir himnasmiðs, minnir um margt á Valeyrarvalsinn að byggingu og efni og er fyrsta skáldsaga Guðmundar Andra í rúman áratug.
Advertisement

Event Venue & Nearby Stays

Bókasafn Kópavogs, Hamraborg 6A, 200 Kópavogsbær, Ísland,Kópavogur, Kopavogur, Iceland

Sharing is Caring:

More Events in Kopavogur

Haltu m\u00e9r \u2013 slepptu m\u00e9r | PISA, lesskilningur og lestur ungmenna
Tue, 04 Feb, 2025 at 08:00 pm Haltu mér – slepptu mér | PISA, lesskilningur og lestur ungmenna

Bókasafn Kópavogs

Samvera \u00e1 foreldramorgni
Thu, 06 Feb, 2025 at 10:30 am Samvera á foreldramorgni

Garðatorg 7, 210 Garðabær, Iceland

GDRN | Af fingrum fram \u00ed 15 \u00e1r
Thu, 06 Feb, 2025 at 08:30 pm GDRN | Af fingrum fram í 15 ár

Salurinn Tónlistarhús

Fj\u00f6lskyldubing\u00f3 \u00e1 Safnan\u00f3tt
Fri, 07 Feb, 2025 at 05:15 pm Fjölskyldubingó á Safnanótt

Bókasafn Garðabæjar

Watachico \u00e1 Safnan\u00f3tt
Fri, 07 Feb, 2025 at 07:30 pm Watachico á Safnanótt

Hamraborg 6, 200 Kópavogur, Iceland

Heimst\u00f3nlist me\u00f0 Chris Foster \u00e1 Safnan\u00f3tt
Fri, 07 Feb, 2025 at 09:00 pm Heimstónlist með Chris Foster á Safnanótt

Bókasafn Kópavogs

Kv\u00f6ldstund me\u00f0 Evu R\u00fan og H\u00f6llu \u00de\u00f3rlaugu \u00e1 Safnan\u00f3tt
Fri, 07 Feb, 2025 at 10:00 pm Kvöldstund með Evu Rún og Höllu Þórlaugu á Safnanótt

Bókasafn Kópavogs

Kopavogur is Happening!

Never miss your favorite happenings again!

Explore Kopavogur Events