Haltu mér – slepptu mér | PISA, lesskilningur og lestur ungmenna

Tue Feb 04 2025 at 08:00 pm to 09:00 pm UTC+00:00

Bókasafn Kópavogs | Kopavogur

B\u00f3kasafn K\u00f3pavogs
Publisher/HostBókasafn Kópavogs
Haltu m\u00e9r \u2013 slepptu m\u00e9r | PISA, lesskilningur og lestur ungmenna
Advertisement
Haltu mér – slepptu mér er fyrirlestraröð fyrir foreldra ungmenna á aldrinum 12-18 ára um ýmis málefni sem tengjast þroska og uppeldi unglinga með áherslu á áskoranir í nútímasamfélagi.
Sigríður Ólafsdóttir rýnir í niðurstöður PISA-könnunarinnar í lesskilningi árið 2022. Hún mun fjalla um hæfniþrep PISA og tengja þau við samfélagslega umræðu hér á landi. Þá mun hún fjalla um mál- og læsiseflandi samskipti á heimili og í skóla sem leggja grunn að djúpum lesskilningi, eins og metinn er í lesskilningshluta PISA.
Sigríður Ólafsdóttir er dósent við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Meginrannsóknasvið hennar beinast að málþroska og læsi, þróun orðaforða, lesskilnings- og ritunarfærni hjá ein-, tví- og fjöltyngdum nemendum.

---------
Ókeypis aðgangur og öll velkomin.
7. janúar 2025, kl. 20:00
Fræðsla um svefn og svefnráð fyrir ungmenni
Erla Björnsdóttir, sálfræðingur og svefnráðgjafi, fjallar um mikilvægi svefns fyrir heilsu, líðan, árangur og frammistöðu ungmenna.
4. mars 2025, kl. 20:00
Hinseginleikinn og ungmenni
Edda Sigurðardóttir, fræðslustýra Samtakanna ’78, ræðir við foreldra um hvað er að vera hinsegin og útskýrir helstu hugtök og orðnotkun. Einnig verður fjallað um stöðu og áskoranir ungs fólks þegar kemur að hinseginleika, hvernig foreldrar geti verið styðjandi og hvaða úrræði standa til boða.
1. apríl 2025, kl. 20:00
Tölvuleikir og tölvuleikjanotkun ungmenna
Kristján Ómar Björnsson og Patrekur Gunnlaugsson, kennarar í grunnskólanum NÚ í Hafnarfirði, ræða um tölvuleiki og tölvuleikjanotkun ungmenna, hvaða leikir eru vinsælir, hvað foreldrar geta gert til að styðja börn sín og sýna áhugamáli þeirra áhuga ásamt því að stuðla að líkamlegu og andlegu heilbrigði og félagslegum tengslum.
29. apríl 2025, kl. 20:00
Ofbeldi og vopnaburður ungs fólks
Margrét Valdimarsdóttir, dósent í afbrotafræði við Háskóla Íslands, rýnir í gögn sem varpa ljósi á þróun ofbeldis meðal ungs fólks og hverjir helstu áhættuþættirnir eru. Áhersla verður lögð á að skoða hvað virkar í forvörnum, hvaða aðferðir reynast árangurslausar og hafa jafnvel öfug áhrif. Auk þess verður fjallað um hvaða inngrip hafa reynst árangursríkust til að draga úr áhættuhegðun og koma í veg fyrir frekari brot.
Advertisement

Event Venue & Nearby Stays

Bókasafn Kópavogs, Hamraborg 6a,Kópavogur, Kopavogur, Iceland

Sharing is Caring:

More Events in Kopavogur

Leslyndi me\u00f0 Gu\u00f0mundi Andra Thorssyni
Wed, 05 Feb, 2025 at 12:15 pm Leslyndi með Guðmundi Andra Thorssyni

Bókasafn Kópavogs

Samvera \u00e1 foreldramorgni
Thu, 06 Feb, 2025 at 10:30 am Samvera á foreldramorgni

Garðatorg 7, 210 Garðabær, Iceland

GDRN | Af fingrum fram \u00ed 15 \u00e1r
Thu, 06 Feb, 2025 at 08:30 pm GDRN | Af fingrum fram í 15 ár

Salurinn Tónlistarhús

Fj\u00f6lskyldubing\u00f3 \u00e1 Safnan\u00f3tt
Fri, 07 Feb, 2025 at 05:15 pm Fjölskyldubingó á Safnanótt

Bókasafn Garðabæjar

Watachico \u00e1 Safnan\u00f3tt
Fri, 07 Feb, 2025 at 07:30 pm Watachico á Safnanótt

Hamraborg 6, 200 Kópavogur, Iceland

Heimst\u00f3nlist me\u00f0 Chris Foster \u00e1 Safnan\u00f3tt
Fri, 07 Feb, 2025 at 09:00 pm Heimstónlist með Chris Foster á Safnanótt

Bókasafn Kópavogs

Kopavogur is Happening!

Never miss your favorite happenings again!

Explore Kopavogur Events