Advertisement
Seiðandi ensk þjóðlagatónlist hljómar á þessum síðkvöldstónleikum með hinum einstaka tónlistarmanni, Chris Foster Enski þjóðlagasöngvarinn og tónlistarmaðurinn Chris Foster er frá Somerset í Englandi. Hann hefur verið búsettur á Íslandi um árabil þar sem hann hefur tekið virkan þátt í íslensku tónlistarlífi, einn síns liðs og með öðrum, þar á meðal með Báru Grímsdóttur, söngkonu og tónskáldi en saman skipa þau hinn ástsæla dúett Funa. Chris hefur komið fram á tónleikum víðs vegar um heiminn, í Bandaríkjunum, í Kína, í Bretlandseyjum sem og á meginlandi Evrópu. Hann hefur sent frá sér sjö sólóplötur en nýjasta platan hans er Hadelin.
Tónleikarnir fara fram á annarri hæð bókasafnsins og eru liður í dagskrár Safnanætur í Kópavogi sem er styrkt af menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar.
Tónleikarnir eru hluti af verkefninu Bókasafnið í fjölmenningarlegu samfélagi.
Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin.
***
Seductive English folk music will be performed at this late-night concert with the unique musician, Chris Foster.
English folk singer and musician Chris Foster is from Somerset, England. He has lived in Iceland for years where he has been an active participant in the Icelandic music scene, both on his own and with others, including with Bára Grímsdóttir, a singer and composer, who together form the beloved duo Funi.
Chris has performed in concerts all over the world, in the United States, China, the British Isles and mainland Europe. He has released seven solo albums, the latest of which is Hadelin.
The concert will take place on the second floor of the library and is part of the Museum Nights in Kópavogur program and the project The Library in a Multicultural Society.
Admission is free and all are welcome.
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Bókasafn Kópavogs, Hamraborg 6A, 200 Kópavogsbær, Ísland,Kópavogur, Kopavogur, Iceland