Advertisement
Stöllurnar Hallveig Rúnarsdóttir sópransöngkona og Hrönn Þráinsdóttir píanóleikari dýfa sér í laug íslenskrar leikhústónlistar. Á undan tónleikunum, kl. 13, verður boðið upp á tónleikaspjall í fordyri Salarins þar sem skyggnst verður inn í efnisskrá dagsins.
Tónleikarnir eru samstarfsverkefni Salarins og FÍT-klassískrar deildar FÍH.
*
Á tónleikunum verður farið vítt og breitt um íslenska leikhústónlistarsögu og flutt lög eftir mörg af okkar ástælustu leikhústónlistarhöfundum, svo sem Hjálmar H. Ragnarsson, Jón Ásgeirsson, Atla Heimi Sveinsson, Jón Nordal, Gunnar Reyni Sveinsson og bræðurna Jón Múla og Jónas Árnasyni.
Þar fyrir utan verða frumfluttar nýjar útsetningar Þórðar Magnússonar á lögum Megasar úr leikritinu Lífið, notkunarreglur eftir Þorvald Þorsteinsson frá árinu 2007 en útsetningar Þórðar eru fyrir söngrödd og píanó.
EFNISSKRÁ
* Ljúflingshóll úr Deleríum Búbónis eftir Jón Múla og Jónas Árnasyni.
* Hvert örstutt spor úr Silfurtúnglinu eftir Jón Nordal og Halldór Laxness.
* Fjögur lög eftir Atla Heimi Sveinsson úr Sjálfstæðu fólki eftir Halldór Laxness í leikgerð Sveins Einarssonar, Þjóðleikhúsinu 1999.
- Dans
- Frændi þegar fiðlan þegir
- Barnagæla
- Klementínudans
* Undir Stórasteini úr Járnhausnum eftir Jón Múla og Jónas Árnasyni.
* Þrjú lög úr sýningunni Lífið, notkunarreglur eftir Megas og Þorvald Þorsteinsson í útsetningu Þórðar Magnússonar – frumflutningur.
* Þrjú lög úr leikritinu Undir suðvesturhimni eftir Gunnar Reyni Sveinsson og Sigurð Pálsson.
– Nóttin er til þess að gráta í I
– Nóttin er til þess að gráta í II
– Maður hefur nú
– Hlé -
* Þrjú lög eftir Hjálmar H. Ragnarsson úr sýningu á Pétri Gaut eftir Henrik Ibsen í leikstjórn Þórhildar Þorleifsdóttur í Þjóðleikhúsinu 1991.
– Söngur Sólveigar
– Hátíðarsöngur
– Vögguvísa Sólveigar
* Í hjarta þér úr Rjúkandi ráði eftir Jón Múla og Jónas Árnasyni
* Fjögur lög eftir Jón Ásgeirsson úr leikgerð Sveins Einarssonar á Húsi Skáldsins eftir Halldór Laxness fyrir Þjóðleikhúsið 1981.
– Hjá lygnri móðu
– Vorvísa
– Barnagæla frá Nýa Íslandi
– Maístjarnan
Um flytjendur:
Hallveig Rúnarsdóttir hefur um árabil verið ein ástsælasta söngkona þjóðarinnar og verið afar virk í íslensku tónlistarlífi. Hún hefur sungið sópranhlutverkið í mörgum helstu stórverkum tónbókmenntanna, komið margoft fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands ásamt fjölda annarra hljómsveita og sungið fjölmörg óperuhlutverk, flest hjá Íslensku óperunni en einnig víðar.
Hallveig hefur frumflutt fjölmörg ný íslensk verk og haldið ótal einsöngstónleika á Íslandi og erlendis undanfarin ár þar sem hún hefur lagt áherslu á ljóðasöng. Hallveig hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin sem söngkona ársins árið 2013 og aftur árið 2018. Auk þess hlaut hún tilnefningu til sömu verðlauna árin 2014, 2016 og 2020.
Hún var tilnefnd til Grímu-verðlauna sem söngvari ársins 2014 og 2017. Hún er listrænn stjórnandi og stofnandi söng-hópsins Cantoque Ensemble sem hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir flutning sinn á barokkverkum með upprunahljómsveitum, bæði hér á landi og erlendis.
—
Hrönn Þráinsdóttir píanóleikari hefur komið fram víða sem einleikari og meðleikari á ljóðasöngtónleikum og kammertónleikum auk þess að hafa hljóðritað fyrir útvarp og leikið inn á geisladiska. Hún hefur tekið virkan þátt í flutningi nýrrar tónlistar, m.a. á Myrkum músíkdögum og með Kammersveitinni Ísafold sem hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin fyrir flutning nýrrar tónlistar árið 2007.
Hrönn stundaði nám hjá Erlu Stefánsdóttur og síðar hjá Jónasi Ingimundarsyni í Tónlistarskólanum í Reykjavík. Í Þýskalandi stundaði hún nám við
Tónlistarháskólann í Freiburg þar sem hún lauk píanókennaraprófi með ljóðasöngmeðleik sem aukafag og síðar við Tónlistarháskólann í Stuttgart þar sem hún lauk mastersgráðu við
ljóðasöngdeild skólans.
Tónleikarnir eru samstarfsverkefni Salarins og FÍT-klassískrar deildar FÍH.
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Salurinn Tónlistarhús, Hamraborg 6, 200 Kópavogsbær, Ísland,Kópavogur, Kopavogur, Iceland
Tickets