Leslyndi með Evu Björg Ægisdóttur

Wed, 05 Nov, 2025 at 12:15 pm UTC+00:00

Hamraborg 6a, 200 Kópavogur, Iceland | Kopavogur

B\u00f3kasafn K\u00f3pavogs
Publisher/HostBókasafn Kópavogs
Leslyndi me\u00f0 Evu Bj\u00f6rg \u00c6gisd\u00f3ttur
Advertisement
Eva Björg Ægisdóttir, verður gestur okkar í Leslyndi miðvikudaginn 5. nóvember.
Eva Björg Ægisdóttir fæddist á Akranesi 27. júní 1988. Fyrstu skref hennar í skrifum voru tekin í Grundaskóla á Akranesi þegar hún vann smásagnakeppni, en eftir það liðu um tæp fimmtán ár þar til næsta ritverk fékk að líta dagsins ljós. Eftir nám í Þrándheimi skrifaði hún fyrstu skáldsögu sína, Marrið í stiganum, samhliða starfi sem flugliði. Sú bók kom út árið 2018 og hlaut Svartfuglinn, glæpasagnaverðlaun sem veitt eru fyrir fyrstu glæpasögu höfunda og var hún fyrst til að hljóta þau verðlaun.
Síðan þá hefur Eva Björg sent frá sér glæpasögu árlega og náð að helga sig ritstörfunum. Bækur hennar hafa hlotið margvísleg verðlaun heima og að heiman. Marrið í stiganum vann til hinna virtu glæpasagnaverðlauna Breta, CWA Dagger og fékk einnig Thrillzone Award í Hollandi fyrir bestu fyrstu glæpasöguna. Heim fyrir myrkur hlaut Íslensku glæpasagnaverðlaunin Blóðdropann árið 2023.
-------------------------
Leslyndi hverfist um yndislestur og uppáhaldsbækur. Þjóðþekktir bókaunnendur stíga á stokk og deila eftirlætishöfundum og bókakveikjum með gestum. Ævintýri og ástarsögur, dagbækur og draumráðningar, sígildar sögur og samtímaverk, orðið er frjálst. Viðburðaröðin hefur notið mikilla vinsælda og skapað sér fastan sess undanfarin misseri, þegar fólk flykkist að til að sjá hina ýmsu rithöfunda deila með okkur sínum uppáhaldsbókum.
Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin á meðan húsrúm leyfir.
Viðburðurinn er styrktur af menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar.
Advertisement

Event Venue & Nearby Stays

Hamraborg 6a, 200 Kópavogur, Iceland, Hamraborg 6A, 200 Kópavogsbær, Ísland, Kopavogur, Iceland

Sharing is Caring:

More Events in Kopavogur

Skynjunarleikur | Foreldramorgunn
Thu, 06 Nov at 10:00 am Skynjunarleikur | Foreldramorgunn

Bókasafn Kópavogs

N\u00e1tt\u00farulj\u00f3\u00f0 | T\u00edbr\u00e1
Sun, 23 Nov at 01:30 pm Náttúruljóð | Tíbrá

Hamraborg 6, 200 Kópavogur, Iceland

Kopavogur is Happening!

Never miss your favorite happenings again!

Explore Kopavogur Events