Advertisement
Nærandi nærvera - eflum tengsl foreldra og barnaKristrún Kristjánsdóttir er móðir, hjúkrunarfræðingur, jógakennari og söngkona. Hún hefur þónokkra reynslu af leikskólastarfi og hefur haldið krakkajóga sumarnámskeið.
Sara Gabríela er móðir, hefur unnið sem dagmamma og verið mikið í barnastarfi, t.d. Félagsmiðstöðin við Gufunes. Hún bjó einnig í Danmörku þar sem hún var með heimarekið skólastarf ásamt öðrum fjölskyldum.
Þessir viðburðir eru skapaðir með þann ásetning að efla tengsl foreldra og barna án utanaðkomandi áreitis sem hefur gjarnan áhrif á daglegt líf - þá sérstaklega í hraðanum í nútíma samfélagi.
Komið og njótið nærandi og rólegrar stundar þar sem börn og foreldrar tengjast í gegnum ljúfa tóna, leik og söng.
--------------
Foreldramorgnar eru frábært tækifæri fyrir foreldra og ung börn þeirra til að hittast og eiga rólega stund saman á safninu.
Fylgist með í Facebook-hópnum Foreldramorgnar | Bókasafn Kópavogs.
Ókeypis aðgangur og öll velkomin.
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Bókasafn Kópavogs, Hamraborg 6a,Kópavogur, Kopavogur, Iceland