Advertisement
Opnun / Opening: 20.03.2026 (17:00 – 19:00) Sýningartími / Dates: 21.–22.03 & 28.–29.03 (13:00 – 17:00)
Staðsetning / Location: Listasafn Sigurjóns Ólafssonar, Laugarnestanga
--------
Sýningin Leiðarlag í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar er samsýning fyrsta árs meistaranema í myndlist við Listaháskóla Íslands. Sýningarstjórar eru meistaranemar í sýningargerð, miðlun og sýningarstjórnun við Háskóla Íslands.
Listasafnið stendur á Laugarnestanga, svæði sem býr yfir ríkri sögu og fjölbreyttum menningarminjum sem hafa mótast í gegnum aldirnar. Titill sýningarinnar vísar í fyrirbærið leiðarlög; afmörkuð, lárétt jarðlög sem liggja samsíða yfirborði jarðar og einkennast hvert um sig af tilteknum eðlis-, efna- og líffræðilegum eiginleikum. Hér endurspeglast ferli líffræðilegra umbreytinga í sögulegum jarðlögum Laugarness, þar sem söguskeiðin hlaðast upp hvert ofan á annað eins og jarðvegur sem byggist upp með tímanum; lag fyrir lag. Verk sýningarinnar marka nýtt stig í þessu lagskipta ferli. Sýningin skapar rými fyrir ýmsa miðla og tjáningarform listamannanna sem allir koma úr ólíkum áttum. Listamennirnir bregðast við forverum sínum og skilja eftir eigin spor í minningum síbreytilegs jarðvegsins.
----
Meðan á sýningu stendur verður boðið uppá ýmsa viðburði:
Laugardagur 21. mars
kl. 14:00 - Leiðsögn sýningarstjóra
kl. 15:30 - Pola Sutryk leiðir opna vinnustofu í Marzanna gerð. Marzanna eru dúkkur úr stráum sem standa sem tákn fyrir veturinn samkvæmt slavneskum hefðum og eru brenndar og þeim drekkt á vorjafndægrum.
Sunnudagur 22. mars
kl. 14:00 - Listamannaspjall (Áslaug Magnúsdóttir, Hildur Ása Henrýsdóttir, Noah Seeland, Pola Sutryk, Þórður Túsan Alisson, Weilan Cha)
Laugardagur 28. mars
kl. 16:00 - Sýning á heimildarmyndinni TORN - sem fjallar um Birgittu Spur.
Sunnudagur 29. mars
kl. 14:00 Söguganga um Laugarnes undir leiðsögn Þuru (Þuríðar Sigurðardóttur) Lagt verður upp frá Listasafni Sigurjóns Ólafssonar.
kl. 15:30 - Listamannaspjall (Celina Aleksandra Borzymowska, Einar Viðar Guðmundsson Thoroddsen, Litten Nystrøm, Regn Evu, roman Voigt, Sólbjört Vera Ómarsdóttir)
//
The exhibition Soil Horizon at the Sigurjón Ólafsson Museum is a group exhibition featuring first-year Master’s students in Fine Arts at the Iceland University of the Arts, curated by Master’s students in Exhibition Making, Mediation, and Curatorship at the University of Iceland.
Located at Laugarnestangi, the museum sits in an area with a rich history and cultural heritage shaped over centuries. The title refers to the geological and historical horizons that build up in layers over time. These “marker horizons” are distinct layers characterised by specific physical, chemical, and biological properties. The exhibition reflects the process of transformation within the historical layers of Laugarnes, where different eras stack upon one another.
The artworks mark a new stage in this layered process. The artists respond to their predecessors, leaving their own traces in the memories of the ever-changing soil. The exhibition creates a space for diverse media and approaches, with each artist exploring the site's unique legacy in different ways.
----
A curated program will be offered during the opening days of the exhibition:
Saturday 21st of March
14:00 - Guided tour by curators
15:30 - Open Marzanna workshop led by Pola Sutryk. Marzanna is a straw doll representing winter in Slavic tradition, which is ritually burned and drowned on the spring equinox.
Sunday 22nd of March
14:00 - Artist talks (Áslaug Magnúsdóttir, Hildur Ása Henrýsdóttir, Noah Seeland, Pola Sutryk, Þórður Túsan Alisson, Weilan Cha)
Saturday 28th of March
16:00 - Screening of the documentary TORN - highlighting Birgitta Spur.
Sunday 29th of March
14:00 - A history walk through Laugarnes guided by Þura (Þuríður Sigurðardóttur). Departure from the Sigurjón Ólafsson Art Museum.
15:30 - Artist talks (Celina Aleksandra Borzymowska, Einar Viðar Guðmundsson Thoroddsen, Litten Nystrøm, Regn Evu, Roman Voigt, Sólbjört Vera Ómarsdóttir)
Listamenn/Artists:
Áslaug Magnúsdóttir
Celina Aleksandra Borzymowska
Einar Viðar Guðmundsson Thoroddsen
Hildur Ása Henrýsdóttir
Litten Nystrøm’s
Noah Seeland
Pola Sutryk
Regn Evu
Roman Voigt
Sólbjört Vera Ómarsdóttir
Þórður Túsan Alisson
Weilan Cha
Sýningarstjórar/Curators:
Erla Sverrisdóttir
Dina Abedini Niknam
Advertisement
Event Venue
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar, Laugarnestangi 71, 105 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.









