Advertisement
Viltu hafa áhrif á þróun Akraness?Boðað er til kynningarfundar um vinnslutillögur að breytingum á deiliskipulagi á Akranesi.
Á fundinum verður kynnt tillaga að breytingu á deiliskipulagi Akraneshöfn (svæði H-102 samkvæmt Aðalskipulagi Akraness 2021–2033). Gert er ráð fyrir landfyllingu við aðalhafnargarð sem ætluð er fyrir hafsækna starfsemi, fiskiðnað og aðra athafnastarfsemi, auk breytinga sem ná til hluta sjóvarnargarðs.
Einnig verður kynnt tillaga að breytingum á deiliskipulagi Garðalundar og Lækjarbotna annars vegar og deiliskipulagi Flóahverfis hins vegar, vegna fyrirhugaðs hringtorgs við gatnamót Akranesvegar og Akrafjallsvegar. Breytingarnar fela meðal annars í sér aðlögun stíga og uppfærð skipulagsmörk í samræmi við hönnun hringtorgsins.
Að lokinni kynningu gefst fundargestum kostur á að kynna sér tillögurnar nánar, spyrja spurninga og koma á framfæri ábendingum áður en málið fer til frekari umfjöllunar og afgreiðslu.
Öll eru velkomin.
Advertisement
Event Venue
Dalbraut 4, 300 Akranes, Iceland, Dalbraut 4, 300 Akraneskaupstaður, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.











