Advertisement
Kári Egils og hljómsveit blása til tónleika í Iðnó þann 17. janúar.Í mars 2025 gaf Kári út aðra poppplötu sína, My Static World, og árið 2024 var hann valinn Bjartasta vonin á Íslensku tónlistarverðlaununum. Þessa dagana leggur Kári lokahönd á glænýja plötu og verða lög af henni frumflutt á tónleikunum.
Þessa dagana er Kári líka í námi við Berklee tónlistarskólann fræga í Boston og eru því ekki mörg tækifæri til að sjá hann og félaga hér á landi. Hljómsveitina skipa Ívar Klausen gítarleikari, Friðrik Örn Sigþórsson bassaleikari, Tumi Torfason trompetleikari og Bergsteinn Sigurðarson trommuleikari.
Ívar Klausen hitar upp og tekur efni af væntanlegri plötu.
Hljómsveitina skipa:
Ívar Klausen gítar
Friðrik Örn Sigþórsson bassi
Tumi Torfason trompet
Bergsteinn Sigurðarson trommur
Þetta er sitjandi viðburður.
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
IÐNÓ, Vonarstræti 3, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.










