Advertisement
Boðið verður upp á þungarokksveislu á Dillon laugardaginn 28 mars. Fyrsta band á svið er Harma, sem byrjar kl. 21:00----------
Harma spilar 90's kassagítar folk metal grunge.
Bandið er skemmtileg samsuða fólks með bakgrunn í dauðarokki og nu-metal. Edda Tegeder, sem syngur, Sölvi Antonsson, sem spilar á gítar, og Jakob Reynisson, sem spilar á trommur. Edda og Jakob eru úr dauðarokksveitinni Angist, bassaleikarinn Atli Hergeirsson er úr nu-metal bandinu Toymachine og Sölvi Antonsson er úr norðlensku sveitinni Smartypants.
https://open.spotify.com/artist/3DZZqOoxG3OZaVQTHhkKC8
https://www.facebook.com/profile.php?id=61575749270375
----------
Eldrún er skipuð af Didda Eðvarðs (söngur), Sindra Snæ Thorlacius (trommur), Karli Gíslasyni (bassa), Björgvini Guðmundssyni (gítar) og Einari Jónssyni (gítar).
Hlljómsveitin hefur verið starfandi frá 2016 en meðlimir hennar hafa komið víða við í gegnum tíðina svo sem í Wistaria, Darknote og Vögel.
Tónlistinni er best lýst sem framsæknu þungarokki undir fjölbreyttum áhrifum.
https://open.spotify.com/artist/4MtMsSkxkVznr4S6h0mlTe
https://eldrun.is
----------
Drápa er íslensk þungarokkshljómsveit sem sækir innblástur í mannlega reynslu. Hljómsveitin var stofnuð árið 2019 og meðlimir koma úr öllum áttum íslenska þungarokkssenunnar og blanda áhrifum sínum saman við einstakan hljóm Drápu. Síðan þá hefur Drápa verið að skapa sér nafn með kraftmiklum lifandi flutningi og ósviknum hljómi. Drápa gaf út sína fyrstu plötu vorið 2024. Platan fangar ósíaða orku hljómsveitarinnar og sameinar þungar tónsmíðar við sterka texta sem fjalla um tilvistarbaráttu, ótta og seiglu. Meðlimir hljómsveitarinnar leggja mikla áherslu á yfirburða sviðsframkomu sem skapar einstakt andrúmsloft á tónleikum þeirra.
https://open.spotify.com/artist/6AVM9rg36bwti89n0X7qNw
https://www.facebook.com/drapa.music
Advertisement
Event Venue
Dillon, Laugavegur 30, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.











