Advertisement
Orkumálaráðherra hefur boðað víðtækar breytingar á stjórnsýslu í tengslum við virkjanaframkvæmdir á Íslandi.
Náttúruverndin virðist ekki vera í tísku inn á alþingi þessa dagana og það virðist vera vinsælla að raska enn meira af ósnortinni náttúru og helst sem allra fyrst.
Vigdís Fríða Þorvaldsdóttir er stjórnsýslufræðingur, umhverfisfulltrúi og kennari við Fjölbrautaskólann í Ármúla, margra ára afar farsæll starfsmaður hjá Landvernd, skáti með meiru og fermingafræðslukennari hjá Siðmennt svo eitthvað sé nefnt. Vigdís sest í sófann, fer yfir náttúruverndina og sína reynslu og svarar spurningum.
Tryggvi Felixson er fyrrverandi formaður og framkvæmdastjóri Landverndar, núverandi meðlimur í Aldin, samtökum eldri borgara gegn loftslagsvá, hagfræðingur og leiðsögumaður og fleira og fleira.
Tryggvi hefur frá mörgu að segja varðandi stöðuna í náttúruverndarmálum.
Tryggvi sest í Græna sófann í Plómunni þetta kvöld og mun svara spurningum um náttúruvernd. Til dæmis eins og hvaða breytingar eru að eiga sér stað á stjórnsýslunni á mannamáli og hvernig er hægt að bregðast við þessu?
Innleiðandi spyrill verður Þórhildur Fjóla Kristjánsdóttir.
Boðið upp á te, kaffi og kex, jafnvel vínber.
Öll velkomin.
Advertisement
Event Venue
Hagamelur 67, 107 Reykjavík, Iceland, Hagamelur 67, 107 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.











