Advertisement
Dr. jr. Davíð Þór Björgvinsson, lagaprófessor og fyrrum dómari, mun fjalla um fornar lögbækur og gildandi lög í hádegisfyrirlestri í Eddu í fyrirlestrti sem hann kallar:„Fornar lögbækur og dómar“
Í erindinu mun hann fjalla um nokkra íslenska dóma, sem nýlega má telja, þar sem meðal annars er finna er tilvísanir í fornar lögbækur. Rætt verður um dómana og útskýrt hvernig þessar fornu réttarheimildir eru notaðar, á hvaða sviðum réttarins og hvaða þýðingu þær hafa fyrir úrlausn mála í samtímanum.
Á handritasýningunni Heimur í orðum eru meðal handrita fornar lögbækur, t.a.m. lögbók úr Skálholti. Einnig eru á sýningunni þrjú lögbókarhandrit sem eru ólík að stærð og gerð. Allar varðveita þær lögbókina Jónsbók sem var samþykkt árið 1281. Jónsbók leysti þá af hólmi lögbókina Járnsíðu sem aðeins gilti í áratug. Réttarbætur komu síðan reglulega frá Noregskonungi og var bætt inn í bækurnar eftir þörfum. Jónsbók er sá texti sem varðveittur er í flestum íslenskum handritum enda gilti bókin að mestu fram á 17. öld og enn má finna stakar greinar úr Jónsbók í núgildandi lögum.
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Edda, Arngrímsgötu 5, IS-107 Reykjavík, Iceland, Oddagata 4, 102 Reykjavíkurborg, Ísland,Reykjavík, Iceland