Advertisement
Fjallfarar munu á haustönn 2025 fara 8 ferðir sem skiptast í 4. kvöldferðir og 4. dagsferðir. Einnig er boðið upp á helgarferð í Tindfjöll. Markmið með hópnum er að bjóða upp á fræðandi og skemmtilegar göngur í góðum félagsskap. Göngur Fjallfara eru 2 - 3 skór og eru þær frá miðlungserfiðum upp í erfiðar göngur, og munu taka mið af getustigi hópsins. Byrjað verður á auðveldum göngum og síðan verður erfiðleikastigið aukið jafnt og þétt.
Dagsgöngurnar eru á laugardegi, hittumst oftast kl. 9 og sameinumst í bíla og keyrum að upphafsstað göngu. Ef veðurútlit er óheppilegt á laugardeginum verður hægt að færa gönguna til sunnudags sömu helgi. Í kvöldgöngunum er gengið af stað kl. 18 og verðum við á áhugaverðum stað í Reykjavík eða í næsta nágrenni.
Farið er á eigin bílum í allar göngurnar. Fararstjórar áskila sér rétt að breyta dagskrá ef aðstæður eru slíkar, s.s. vegna veðurs eða annarra aðstæðna.
Skráning og göngudagskrá; https://www.utivist.is/ferdir-og-dagskra/hopar-namskeid/vidburdur/6705/fjallfarar-haust-2025-an-tindfjallaferdar
Fararstjórar:
Ingvar Júlíus Baldursson
Ólafur Sigurjónsson
Guðrún Svava Viðarsdóttir
Margrét Harðardóttir
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Katrínartún 4, 105 Reykjavík, Iceland, Katrínartún 4, 105 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets