Advertisement
Elín Hall – Vortónleikar á Fantasíu Eftir glæsta upphitun fyrir Laufey kynnir Elín Hall einstaka vortónleika á Fantasíu við Austurvöll laugardaginn 2. maí kl. 21:00. Með sínum einkennandi draumkennda hljóðheimi og hárbeittu textum flytur hún lög af verðlaunaplötunni heyrist í mér? ásamt nýju, óútgefnu efni sem hún hefur tekið upp í London.
Elín Hall hefur skapað sér einstakan sess í íslenskri menningu sem margverðlaunuð tónlistar- og leikkona. Hún hefur stígið á svið á hátíðum eins og Eurosonic í Hollandi og BludFest í Bretlandi. Sem leikkona vakti hún heimsathygli fyrir kvikmyndina When the Light Breaks, sýnd á Cannes, og hlaut bæði Edduna og verðlaun fyrir besta leikkonu í aðalhlutverki á kvikmyndahátíðinni í Chicago.
Þetta verður einstakt kvöld í hjarta miðbæjarins, þar sem áhrifamikill tónleikaflutningur mætir glæsilegu umhverfi.
🎟 Takmarkaður miðafjöldi – tryggðu þér miða á tix.is
Miðar fara í sölu þriðjudaginn 31. mars kl. 10:00.
Advertisement
Event Venue
Vinnustofa Kjarval, Austurstræti 10, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.











