Advertisement
Verið velkomin í ævintýralega röð af listasmiðjum í Þjóðminjasafninu þar sem við sökkvum okkur inn í heim myndlistarinnar hennar Hilmu af Klint.Hilmuskóli fer fram í Þjóðminjasafninu alla sunnudaga í maí og hefst kl. 14. Hver smiðja stendur yfir í um 1,5 klukkustund, og eru foreldrar beðnir um að vera með börnunum á meðan smiðjan fer fram. Enginn aðgangseyrir er í smiðjurnar og börn geta komið í staka smiðju eða allar smiðjurnar, og allt þar á milli.
Um Hilmuskóla:
Í Hilmuskólanum er hver listasmiðja eins og ferðalag. Við fylgjum vísbendingum úr verkum Hilmu – litum hennar, hringjum, línum og dularfullum táknum – og leyfum þeim að leiða okkur inn í skapandi rannsókn á tilbrigðum náttúrunnar. Hvað leynist undir yfirborðinu? Hvaða mynstur birtast þegar við hlustum á litina og leyfum formunum að tala? Verkefnin verða fjölbreytt og skapandi, þar sem þátttakendur fá að prófa ólíkar aðferðir, liti og form. Tímarnir verða þannig ævintýraleg samþætting listar, ímyndunar og uppgötvunar – þar sem sköpun, forvitni og dulúð fá að vaxa saman.
Hilmuskóli – þar sem listin opnar dyr að hinu ósýnilega!
Freyja Eilíf leiðir listasmiðjurnar og eru þær hluti af meistaraverkefni hennar í listkennslunámi við Háskóla Íslands. Þannig er um að ræða samstarfsverkefni Menntavísindasviðs Háskóla Íslands og Þjóðminjasafnsins. Freyja Eilíf hefur reynslu af kennslu á grunnskólastigi og leggur áherslu á skapandi og forvitnilega nálgun þar sem börn fá að kanna heim listarinnar á eigin forsendum. Athugið að óskað er eftir leyfi til að taka ljósmyndir af verkum barnanna. Myndirnar verða notaðar við gerð námsgagna í lok listasmiðjanna.
_______________
Nánar um hvern tíma:
🎨 3. maí - Leyndarmál í línum og mynstri
Hliðstæður í formteikningu
Í þessum tíma opnum við dyr að dularfullum heimi fyrstu Musterismálverka Hilmu af Klint. Við skoðum hvernig listakonan notaði form og mynstur til að segja sögur um heiminn í kringum okkur – og jafnvel heiminn sem við sjáum ekki. Við uppgötvum hvernig eitt form getur táknað margt í einu. Spírall getur verið snigill… eða heil vetrarbraut. Hringur getur orðið að plánetu, frumu eða atómi. Bylgjur geta minnt á ljós, orku eða öldur hafsins. Innblásin af þessum dularfullu táknum munum við skapa okkar eigin myndverk og leyfa litum, línum og mynstrum að leiða okkur í skapandi ævintýri.
🎨 10. maí - Dulmál táknanna
Bókstafir breytast í form og mynstur
Í þessari listasmiðju könnum við hvernig bókstafir geta breyst í mynstur og tákn með innblæstri frá verkum Hilmu af Klint. Nemendur hanna sitt eigið myndræna stafróf og dulmál og fá leiðsögn í því hvernig hægt er að umbreyta bókstöfum í form og mynstur. Sérstök áhersla verður lögð á að skoða upphafsstaf í nafni hvers og eins og breyta honum í persónulegt tákn. Með línum, punktum og einföldum formum eins og hringjum, ferningum og þríhyrningum skapast nýtt myndmál þar sem stafir verða að mynstrum og merkingin verður persónuleg.
🎨 17. maí - Töfrar Viskutrésins
Samhverfur í náttúrunni / andstæður viskutrésins
Listasmiðjan hefst á sögu um dularfullt Viskutré – tré sem geymir visku, leyndardóma og sögur heimsins. Slík tré birtast víða í goðsögum og frásögnum, til dæmis heims¬trénu Yggdrasill og lífsins tré í Biblíunni. Síðan skoðum við myndröðina Viskutréð eftir Hilma af Klint og veltum fyrir okkur mynstrunum sem þar birtast. Hvað er samhverfa? Sjáum við hana í trjám eða í náttúrunni í kringum okkur? Og hvaða andstæður getum við fundið – ljós og myrkur, kyrrð og hreyfingu, stórt og smátt?
Innblásin af sögunni og verkum Hilmu fá nemendur síðan að skapa sitt eigið Viskutré þar sem samhverfur, mynstur og andstæður vaxa út eins og greinar úr stofni.
🎨 24. maí - Altari litanna
Þegar form verða að helgimynd
Listasmiðjan hefst á sögu um dularfullu altarismyndirnar í verkum Hilmu af Klint. Við skoðum myndröðina Altari – síðustu Musterismálverkin sem hún vann – og veltum fyrir okkur litunum, formunum og táknunum sem þar birtast. Hvað geta litir sagt okkur? Getur hver litur haft sína eigin merkingu? Í gegnum söguna kynnumst við því hvernig litir og form í altarismyndum Hilmu mynda sérstakt myndmál. Að því loknu fá nemendur pappír og lituð form til að vinna með og skapa sitt eigið altari. Með klippimynd, samhverfu og litum innblásnum af verkum Hilmu búa þau til persónulegt myndverk þar sem litir, form og tákn raðast saman í nýja heild.
🎨 31. maí - Skynkortagerð
Litir, form og innri myndheimur
Í þessari listasmiðju skoðum við stóru myndröðina Tíu stærstu verkin eftir Hilmu af Klint. Í þessum litríku og kraftmiklu málverkum reyndi Hilma að kortleggja lífið sjálft – mismunandi aldursstig, tilfinningar og umbreytingar. Við kynnumst vinnuaðferðum hennar og skoðum hvernig myndir geta orðið að kortum yfir hugmyndir, tilfinningar og reynslu. Við veltum fyrir okkur ólíkum leiðum til að kortleggja heiminn – til dæmis með landakortum og hugkortum – og hvernig litir og form geta einnig orðið að myndrænu korti. Áður en sköpunin hefst leiðir kennari stutta hugleiðsluferð um litina þar sem þátttakendur fá að ímynda sér hvaða tákn, myndir eða tilfinningar hver litur vekur hjá þeim. Að því loknu skapa nemendur sitt eigið skynkort – myndrænt kort þar sem litir, form og tákn segja persónulega sögu og kortleggja heim ímyndunarinnar.
Advertisement
Event Venue
Þjóðminjasafn Íslands/ National Museum of Iceland, Suðurgata 41, 102 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.











