Advertisement
🌿 Dagur Grænni byggðar 2025 verður haldin í IÐNÓ 8. október! 🗣 Dagskrá hefst kl. 13:00 og búast má við degi fullum af áhugaverðum erindum og Græna skóflan verður afhent í lok dags. Frekari dagskrá verður auglýst þegar nær dregur.
🤝🏻 Á ráðstefnunni í ár verður lögð áhersla á ýmsa þætti sjálfbærni. Umfram umhverfismál verður lögð sérstök áhersla á félagslega þætti sjálfbærni - velferð notenda í byggðu umhverfi.
➡ Skráning á ráðstefnuna fer fram hér: https://forms.gle/FEHWhpqVBwmxWVaF7
💡Aðalfyrirlesari ráðstefnunnar verður Natalia Olszewska.
🏡 Natalia Olszewska er læknir og er auk þess með MSc gráðu. Hún hefur brennandi áhuga á heilsumiðaðri hönnun og sköpun umhverfis sem styður við heilsu og vellíðan. Með þetta að markmiði sérhæfir hún sig í að nýta taugavísindi og sálfræði í arkitektúr og hönnun bygginga og byggir þá vinnu á djúpum skilningi á lífeðlisfræði og læknisfræði.
📖 Natalia er með einstakan þverfaglegan bakgrunn en hún er með menntun í læknisfræði, taugavísindum, og taugavísindum í arkitektúr auk þess sem hún hefur stundað rannsóknir við Harvard háskóla og Collège de France.
✏ Natalia er einn af stofnendum IMPRONTA, rannsóknar- og ráðgjafafyrirtækis sem leggur áherslu á vísindin að baki hönnunar sem hefur heilsu og vellíðan að leiðarljósi. Hún hefur unnið að byggingar verkefnum um allan heim sem eiga það sameiginlegt að vera hönnuð til þess að styðja við hugræna, tilfinningalega og félagslega þróun.
👩🏫 Natalia kennir taugavísindi í arkitektúr við IUAV háskólann í Feneyjum. Öll hennar vinna byggist á þeirri trú að arkitektúr eigi að gera meira en þjóna bara sínum grunntilgangi og eigi að uppfylla djúpstæðar líffræðilegar, tilfinningalegar og félagslegar þarfir okkar. Hún heldur fyrirlestra og skrifar um tengslin milli heilsu, taugavísinda og byggða umhverfisins.
👏 Dagskrá í heild sinni verður birt þegar nær dregur. Fylgist með hér, á Facebook síðu Grænni byggðar og á graennibyggd.is
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
IÐNÓ, Reykjavík, Iceland