Advertisement
Við bjóðum meðferðaraðilum að dýpka sig í Gottman fræðum. Stig 1 & 2 verður kennt þann 1. mai 2025. Gottman aðferðin er gagnreynd og árangursrík meðferðarnálgun í paravinnu, byggð á 50 ára reynslu og rannsóknum. Við bjóðum upp á einstakt tækifæri til að efla faglega færni í samskipta / pararáðgjöf. �
Ekki láta þetta einstaka tækifæri framhjá þér fara að læra aðferðir Gottmans. Gottman hjónin John og Julia hafa varið 50 ára vinnu í að rannsaka parsambandið, þar hafa þau farið ofan í kjölin á því hvað fær parsamband til að virka og hvað fær það til að klikka. Þau byggja niðurstöður sínar á þessum áratuga rannsóknum.
Við hjá Lausninni kynnum til leiks Gottman stig 1 & 2, sem veitir þér aðgang að gagnreyndri aðferð til að styrkja faglega hæfni þína í að vinna með pör/hjón og í raun öll samskipti yfirhöfuð.. Námskeiðið er staðnámskeið.
📅Námskeiðið fer fram 1. - 5. maí 2025
📍Staðsetning: Ármúla 40, í húsnæði Lausnarinnar
Kennari: Chris Cambas, vottaður Gottman-meðferðaraðili og reyndur kennari í Gottmann fræðunum.
Um Chris Cambas:
Við erum stolt af því að kynna Chris Cambas sem leiðbeinanda á komandi Gottman-námskeiði okkar.�Chris er löggiltur hjóna- og fjölskylduráðgjafi með yfir 50.000 klukkustunda reynslu í að vinna með pörum. Hann er vottaður Gottman-meðferðaraðili og kennari, auk þess að vera meðstofnandi National Marriage Seminars og CoupleStrong í Ameríku. Hann hefur einnig stofnað og stýrir Tampa Bay Christian Counseling Center, þar sem hann hefur hjálpað ótal pörum að styrkja sambönd sín. Með yfirgripsmikla þekkingu og ástríðu fyrir að aðstoða pör mun Chris veita þátttakendum dýrmæta innsýn og verkfæri til að bæta faglega færni sína í meðferðarvinnu.
Af hverju ættir þú að taka þátt?
✅ Eykur skilning þinn á samskiptamynstri para byggt á vísindalegum aðferðum.
✅ Nærð yfirgripsmikilli þekkingu og öðlast verkfæri til að styðja pör í að styrkja samband sitt.
✅ Tekur fyrsta skrefið í að geta orðið vottaður Gottmann-meðferðaraðili.
✅ Undirbýr þig fyrir stig 3, sem verður kennt haustið 2025 hér á Íslandi.
Skráning og verð:
💰 Verð: 220.000 kr.
💰 Skráning fyrir 2. apríl: veitir 10% afslátt!
📩 Skráning og nánari upplýsingar: [email protected]
Hafir þú einnig áhuga á að ljúka stigi 3 geturðu hafist handa við vottunarferli þitt hjá Gottmann-stofnuninni.
Ekki missa af tækifæri til að efla færni þína í paravinnu og styrkja faglega framtíð þína í meðferðarvinnu!�Síðasta Gottman námskeið hér á Íslandi var haldið fyrir tæpum 15 árum. Þetta er því einstakt tækifæri til að auka við þekkingu og færni í þessum gagnreyndu parafræðum.
Flest öll stéttarfélög taka þátt í niðurgreiðslu námskeiðsins, einnig er hægt að fá ECTS einingar á þessu námskeiði.
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Ármúli 40 (3. hæð), 108 Reykjavík, Iceland, Ármúli 40, 108 Reykjavíkurborg, Ísland,Reykjavík, Iceland