Advertisement
Soffía blæs til vortónleika á NASA við Austurvöll.Soffía hefur verið áberandi í íslenskri tónlistarsenu frá því hún gaf út sína fyrstu plötu, sem heitir einfaldlega Soffía Björg. Lagið I Lie var mikið spilað á íslenskum útvarpsstöðvum og fékk góðar umfjallanir í erlendum tónlistarmiðlum. Í kjölfarið fékk hún nokkrar tilnefningar á Hlustendaverðlaununum og Íslensku Tónlistarverðlaununum.
Síðan þá hefur Soffía gefið út plötuna The Company You Keep og nokkur lög þess á milli.
Lagið Bonafide sem hún söng með Krumma fór í toppsæti vinsældarlista Rásar 2 og annað lag sem ber að nefna er er endurgerð á lagi sem að amma hennar, Soffía Karlsdóttir gerði frægt hér á landi fyrir um 70 árum síðan. Hún söng Það er draumur að vera með dáta, en Soffía Björg gerði nýjan texta við lagið og hennar útgáfa heitir Draumur að fara í bæinn.
Lagið var nýlega flutt í þætti Gísla Marteins við frábærar undirtektir.
Síðustu misseri hafa nokkur lög af þriðju sólóplötu tónlistarkonunnar verið í sýningu á RÚV í þættinum Stúdíó RÚV. Platan er í vinnslu og mun ný tónlist líta dagsins ljós mjög fljótlega.
Hljómsveitina skipa:
Pétur Ben - söngur og gítar
Fríða Dís - söngur og bassi
Magnús Trygvason Eliassen - trommur
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Iceland Parliament Hotel, Thorvaldsensstræti 2,Reykjavík, Iceland
Tickets