Advertisement
Jazzklúbburinn Múlinn heldur áfram með vordagskrá sína með spennandi tónleikum miðvikudaginn 30. apríl kl. 20:00 á Björtuloftum, Hörpu. Á tónleikunum fagnar Múlakvintettinn Alþjóðlega jazzdeginum ásamt fjölda tónlistarfólks á tónleikum um heim allan. UNESCO útnefndi þennan tiltekna dag, 30. apríl sem hinn opinbera dag jazzins árið 2011. Mottó dagsins er að jazztónlist getur í sínum mörgu og fjölbreyttu myndum verið tákn sameiningar fyrir fólk af ólíkum uppruna og frá öllum heimshornum sem hlustendur og/eða virkir þátttakendur. Á tónleikum Múlans mun Múlakvintettinn leika fjölbreytt efni af efnisskrám hljómsveitarinnar. Tónlist útsett fyrir tvo saxófóna og rytmasveit þar sem dillandi flæði sveiflunnar ræður ríkjum. Á tónleikunum koma fram saxófónleikaranir Haukur Gröndal og Ólafur Jónsson, Ásgeir Ásgeirsson á gítar, bassaleikarinn Þorgrímur Jónsson og Erik Qvick sem leikur á trommur.The Mulinn Jazz Club Quintet / The International Jazz Day
The Múlinn Jazz Club Quintet celebrates the International Jazz Day together with musicians who give concerts all over the world. UNESCO designated this particular day, April 30th, as the official Jazz Day in 2011. The motto of the day is that jazz music, in its many and varied forms, can be a symbol of unity for people of different origins and from all over the world as listeners and/or active participants. At the concert, the Quintet will play a variety of material from the bands repertoire. Music arranged for two saxophones and a rhythm section where the swinging flow is the order of the day.
Haukur Gröndal, saxophone
Ólafur Jónsson, saxophone
Ásgeir Ásgeirsson, guitar
Þorgrímur Jónsson, bass
Erik Qvick, drums
The concert starts at 20 @ Björtuloft, Harpa Concert House. Tickets ISK 4500.
Spennandi vordagskrá Múlans heldur síðan áfram á miðvikudagskvöldum fram í miðjan maí. Múlinn er að hefja sitt 28. starfsár en hann er samstarfsverkefni Félags Íslenskra Hljómlistamanna (FÍH) og Jazzvakningar. Klúbburinn heitir í höfuðið á Jóni Múla Árnasyni sem jafnframt var heiðursfélagi og verndari Múlans.
Múlinn er styrktur af Reykjavíkurborg, SUT sjóðnum og er í samstarfi við Heimstónlistarklúbbinn og Hörpu. Jazzklúbburinn Múlinn er handhafi Íslensku tónlistarverðalaunanna.
Tónleikar Múlans fara fram á miðvikudagskvöldum klukkan 20:00 á Björtuloftum, fimmtu hæð Hörpu. Miðaverð kr. 4500 og 3300 fyrir nemendur og eldri borgara, miðar fást í miðasölu Hörpu.
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Harpa Concert Hall and Conference Centre, 101 Reykjavík, Iceland, Austurbakki 2, 101 Reykjavíkurborg, Ísland,Reykjavík, Iceland
Tickets