Advertisement
Í Minnesota hafa hannyrðapönkarar (e. craftivists) prjónað rauðar skotthúfur til að mótmæla aðgerðum ICE gegn innflytjendum í Bandaríkjunum. Í seinni heimsstyrjöldinni báru Norðmenn rauðar prjónaðar húfur sem friðsamlega og þögla andspyrnu gegn hernámi nasista.
Húfurnar, sem eiga rætur í þjóðsögum, voru bornar til að styrkja andann og tákna samstöðu. Vegna vinsælda þeirra bönnuðu nasistar þær formlega 26. febrúar 1942.
Íslandsdeild Amnesty International, í samstarfi við Handprjónasamband Íslands og Ístex, vill bjóða öllum sem vettlingi geta valdið að prjóna með okkur rauðar skotthúfur og mótmæla með táknrænum hætti mannréttindabrotum ICE í Bandaríkjunum.
Mótmælin tengjast ákalli Amnesty International sem krefst réttlætis fyrir ítrekuð mannréttindabrot innflytjenda- og tollaeftirlits Bandaríkjanna.
Húfan er eftir uppskrift Paul S. Neary frá Minnesota og heitir Melt the ICE.
Frá og með 23. mars getur þú mætt í Handprjónasamband Íslands í Borgartúni 31 og keypt poka með uppskrift, garni og upplýsingum um mótmælin. Hver poki kostar 500 kr.
23. mars - 18. apríl hefurðu tíma til að skoða uppskriftina, fitja upp á prjónana og byrja að prjóna.
Sunnudaginn 19. apríl hittumst við kl. 15-18 og prjónum saman! Léttar veitingar og áhugaverð erindi.
Viðburðurinn verður haldinn í ráðhúsi Reykjavíkur.
Advertisement
Event Venue
Ráðhús Reykjavíkur, Tjarnargata 11,Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.











