Advertisement
Á milli býður ykkur velkomin á opnun á „Osfrv.“, sýningu eftir Finn Arnar á fimmtudaginn 2. október kl. 16:00 til 19:00. Sýningin stendur yfir til 6. október og er opin daglega frá 12:00–18:00.
*
Tíminn er náttúruauðlind. Takmörkuð fyrir hvert og eitt okkar en í stóra samhenginu ofar okkar takmarkaða skilningi. Tækniframfarir rugla og flækja lífið og oft er eins og náttúrunni sjálfri sé snúið á hvolf. Að nýta tímann er ekki valkvæð ákvörðun okkar mannanna heldur ákvörðun þeirra sem ráðstafa lífi allra hinna og ræna fólk tímanum.
En himintunglin láta ekki segja sér fyrir verkum heldur líða áfram í einni endalausri árstíð.
**
Finnur Arnar stundaði nám, fyrst í skúlptúrdeild en síðan í fjöltæknideild Myndlista og handíðaskóla Íslands og útskrifaðist þaðan árið 1991. Hefur samhliða sinni myndlist hannað leikmyndir fyrir leikhús, sýningar fyrir söfn og stofnanir ásamt því að kenna bæði myndlist og leiklist. Þá var hann listrænn stjórnandi og rak Menningarhúsið Skúrinn á árunum 2012–2014. Verk Finns eru oftar en ekki um samband manns, náttúru og umhverfis, um smæð mannsins gagnvart stærri og sterkari öflum og hvernig sú staðreynd breytir skynjun okkar á eigin tilveru. Og svo framvegis.
***
Á milli welcomes you to the exhibition opening of “Etc.” by Finnur Arnar, on Thursday, 2. October, 16:00–19:00. The exhibition is open daily from 12:00–18:00, and runs until 6. October.
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Á milli, Ingólfsstræti 6, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Ingólfsstræti 6, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland