Advertisement
Opinn íbúafundur um málefni íþróttastarfs, heilsueflingar og almennrar lýðheilsu í sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps verður haldinn í grunnskólanum í Borgarnesi þriðjudaginn 5. maí kl 20:00. Öll framboð til sveitarstjórnar í þessu sameinaða sveitarfélagi hafa boðað komu sína og mun forystufólk þeirra taka þátt í pallborðsumræðum um þessi mál. Ef þú hefur áhuga á íþróttastarfi barna og fullorðinna á svæðinu, hefur skoðun á opnunartímum sundlauga, lagningu göngustíga, umhirðu útivistarsvæða í eigu sveitarfélaganna tveggja, sem nú eru að sameinast, eða einhverju öðru sem tengist yfirskrift fundarins hvetjum við þig eindregið til að mæta og taka þátt í samtalinu :)
Advertisement
Event Venue
Grunnskólinn í Borgarnesi, Gunnlaugsgata 13a,Borgarnes, Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.











