Advertisement
Himinn og jörðVortónleikar Léttsveitar Reykjavíkur bera yfirskriftina "Himinn og jörð" og eru tileinkaðir lagasmíðum höfundarins ástsæla Gunnars Þórðarsonar. Má þar finna margar og fjölbreyttar perlur úr lagasafni Gunnars. Stjórnandi er Gísli Magna og hljómsveitina skipa þau Aðalheiður Þorsteinsdóttir á píanó, Diddi Guðna á trommur, Pétur Valgarð Pétursson á gítar og Þorgrímur Jónsson á bassa. Um tvenna tónleika verður að ræða, dagana 5. maí og 7. maí og verða þeir haldnir í Langholtskirkju og hefjast báðir tónleikar kl. 19.30. ATH! Númeruð sæti.
Advertisement
Event Venue
Langholtskirkja, Sólheimar 11, 104 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.






