Þetta 6 vikna námskeið sem haldið er þriðja árið í röð, er fyrir konur á öllum aldri sem vilja styrkja taugakerfið, finna meiri ró og jafnvægi og dýpka tengsl við sjálfar sig í gegnum náttúruna – til að blómstra í fjölbreyttum hlutverkum daglegs lífs.
🌿 Um námskeiðið
Við leitum leiða til að skapa meiri ró, orku og seiglu í amstri dagsins. Með aðferðum úr iðjuþjálfun og náttúrumeðferð vinnum við með það sem skiptir máli – jafnvægi, næringu fyrir taugakerfið og skýrari stefnu í eigin lífi.
🌿 Hver tími inniheldur:
• Fræðslu og innblástur út frá kvennlægum hlutverkum
• Æfingar til að takast á við streitu með taugakerfi kvenna að leiðarljósi
• Verkefni í náttúrunni – bæði einstaklings- og hópverkefni
• Ígrundun og rými til að tengjast sjálfri þér
🌿 Við hittumst einu sinni í viku í sex vikur í náttúru höfuðborgarsvæðisins. Í upphafi og að loknu námskeiði fara fram einstaklingsviðtöl þar sem sett eru markmið og unnið markvisst að því að yfirfæra lærdóminn inn í daglegt líf.
🌿Leiðbeinendur:
Alda Pálsdóttir og Harpa Ýr Karínardóttir, áfalla- og tengslamiðaðir iðjuþjálfar og sérfræðingar í náttúrumeðferð.
📅 Næsta námskeið hefst: 29. apríl 2026
Nánari upplýsingar á [email protected] eða [email protected]
Event Venue
Sundagarðar 2, 2. hæð, 104 Reykjavík, Iceland, Sundagarðar 2, 104 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.





