Advertisement
Þorrablót Víkings verður haldið þann 31. janúar 2026!✨Almenn miðasala hefst mánudaginn 3. nóvember kl 12:00. Líkt og síðustu ár verður aðeins hægt að kaupa heil borð en hvert borð er fyrir 10 manns. Þannig nú er um að gera að fara að smala saman vinahópnum og næla ykkur í borð!
Borðabókanir fara fram í gegnum [email protected] og er hvert 10 manna borð á 169.000 kr.
Múlakaffi sér um steikar- og vegan hlaðborð, ásamt þorraveislu.
Í ár verða skemmtiatriðin engum lík en veislustjórar kvöldsins eru þeir Auðunn Blöndal og Steindi JR. Ballið er svo í höndum Eyjahljómsveitarinnar Mucky Muck en ásamt þeim munu þær Stefanía Svavars og Elísabet Ormslev halda uppi fjörinu fram á nótt!🥳🤩
Að mæta á þorrablót er frábær leið til að kynnast fólkinu í hverfinu en auk þess er þetta virkilega góð leið til að styðja við barna- og unglingastarf Víkings í handbolta og fótbolta!
Hlökkum til að sjá ykkur í biluðu stuði í janúar!✨❤️🖤
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Traðarlandi 1, 108 Reykjavík, Iceland, Traðarland 1, 108 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.








