Ég skemmti mér - Friðrik Ómar og Guðrún Gunnars

Sat, 31 Jan, 2026 at 08:00 pm UTC+00:00

Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús / Harpa Concert Hall and Conference Centre | Reykjavík

RIGG - vi\u00f0bur\u00f0ir
Publisher/HostRIGG - viðburðir
\u00c9g skemmti m\u00e9r - Fri\u00f0rik \u00d3mar og Gu\u00f0r\u00fan Gunnars
Advertisement
Ég skemmti mér - Friðrik Ómar og Guðrún Gunnars.
Miðasala hefst 31. október kl. 10:00 á harpa.is!
Eitt óvæntasta söngpar íslenskrar tónlistarsögu, steig fullskapað fram í sviðsljósið á upphafsárum þessarar aldar, eða árið 2005. Gríðarlegur aldursmunur er á parinu en í dag má vart sjá hvort þeirra er eldra, svo vel hafa árin leikið eldri helminginn. Þetta eru þau Guðrún Gunnars og Friðrik Ómar sem gáfu út þrjár hljómplötur(2005,2006,2007) sem allar fóru í gull í sölu og urðu gríðarlega vinsælar, bæði í útvarpi og á heimilinum landsmanna.
Þessar hljómplötur fengu nafnið Ég skemmti mér, Ég skemmti mér í sumar og sú þriðja var jólaplata. Lögin voru vandlega valin úr dægurlagakistunni, lög sem nutu vinsælda hér áður fyrr og gengu svo í endurnýjun lífdaga með þeim Friðriki Ómari og Guðrúnu. Í kjölfarið héldu þau tónleika víða um land til að fylgja vinsældunum eftir og má segja að þau hafi hætt fyrir fullu húsi.
Ég skemmti mér hljómplöturnar voru skemmtilega útsettar af Ólafi Gauki Þórhallssyni og núna hefur Ingvar Alfreðsson píanóleikari endurútsett lögin en byggir á góðum grunni Ólafs.
Þau Guðrúnu og Friðrik þarf vart að kynna fyrir landsmönnum en þau hafa hvort í sínu lagi byggt upp traustan og vandaðan tónlistarferil og tekið þátt í ógrynni verkefna með fjölmörgum tónlistarmönnum. Margir muna eftir minningartónleikum sem Guðrún hélt árið 2002,Óður til Ellyjar(Vilhjálms), sem slógu rækilega í gegn og hún fylgdi eftir í 10 ár og einmitt vegna þeirra sem hún kynntist Friðriki Ómari rúmlega tvítugum tónlistarmanni á Dalvík, árið 2003. Nú síðustu ár hefur hún einbeitt sér að norrænni þjóðlagatónlist, en hún hóf einmitt feril sinn í þeirri tónlist fyrir 40 árum.
Friðrik Ómar hefur byggt upp tónlistarstórveldið RIGG og staðið fyrir tónleikaverkefnum sem tekið hefur verið eftir og hvergi slegið af kröfum, allt uppá 10 á öllum sviðum. Friðrik er einn af okkar allra bestu og vinsælustu söngvurum og framtíðin er hans.
Já, það eru rúm 20 ár frá þessu ÉG SKEMMTI MÉR ævintýri og heldur betur tilefni til að fagna tímamótunum með glæsilegum tónleikum í Hörpu þann 31.janúar 2026.
Þetta verða umfram allt skemmtilegir tónleikar með frábærum lögum sem allir muna eftir og umgjörðin öll hin glæsilegasta í anda gullárana og hér hefur RIGG hvergi sparað til frekar en vanalega. Allt uppá tíu.
Ef hin fullkomna jólagjöf fyrir pabba og mömmu, afa og ömmu er til, þá er þetta hún!

Viðburðahaldari:
Rigg ehf.
Advertisement

Event Venue & Nearby Stays

Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús / Harpa Concert Hall and Conference Centre, Austurbakki 2, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland

Tickets
Icon
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.

Ask AI if this event suits you:

More Events in Reykjavík

V\u00edsindas\u00fdningin Hjartastrengir & vatns\u00e6\u00f0ar 16. okt\u00f3ber-31. jan\u00faar
Sat, 31 Jan at 08:30 am Vísindasýningin Hjartastrengir & vatnsæðar 16. október-31. janúar

Rafstöðvarvegur 14, 110 Reykjavíkurborg, Ísland

Fj\u00f6lskyldudagskr\u00e1 H\u00f6rpu: Hlj\u00f3\u00f0ba\u00f0 | Sound bath
Sat, 31 Jan at 12:00 pm Fjölskyldudagskrá Hörpu: Hljóðbað | Sound bath

Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús / Harpa Concert Hall and Conference Centre

Hjartastrengir & vatns\u00e6\u00f0ar 16. okt\u00f3ber - 31. jan\u00faar
Sat, 31 Jan at 04:30 pm Hjartastrengir & vatnsæðar 16. október - 31. janúar

Rafstöðvarvegur 14, 110 Reykjavíkurborg, Ísland

Sk\u00fdin eru skuggar \/ P\u00edan\u00f3kvartettinn Negla
Sat, 31 Jan at 05:00 pm Skýin eru skuggar / Píanókvartettinn Negla

Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús / Harpa Concert Hall and Conference Centre

\u00deorrabl\u00f3t Mi\u00f0b\u00e6jar & Hl\u00ed\u00f0a 2026
Sat, 31 Jan at 06:30 pm Þorrablót Miðbæjar & Hlíða 2026

Hlíðarendi, 105 Reykjavík, Iceland

\u00deorrabl\u00f3t V\u00edkings 2026
Sat, 31 Jan at 06:30 pm Þorrablót Víkings 2026

Traðarlandi 1, 108 Reykjavík, Iceland

Tex
Sat, 31 Jan at 09:00 pm Tex

Laugavegur 30, 101 Reykjavíkurborg, Ísland

T\u00f3nsk\u00e1ldaspjall \/ Hildigunnur R\u00fanarsd\u00f3ttir
Sun, 01 Feb at 04:00 pm Tónskáldaspjall / Hildigunnur Rúnarsdóttir

Hallgrímskirkja

'Wonders of Iceland'
Sun, 01 Feb at 05:00 pm 'Wonders of Iceland'

Reikjavik Islandia

Songwriter night @ Bird \u2728\ufe0f\ud83e\udda9\ud83c\udfb8\ud83c\udfb6
Sun, 01 Feb at 08:00 pm Songwriter night @ Bird ✨️🦩🎸🎶

Bird RVK

Eternal Sunshine of the Spotless Mind - Svartir Sunnudagar
Sun, 01 Feb at 09:00 pm Eternal Sunshine of the Spotless Mind - Svartir Sunnudagar

Hverfisgata 54, 101 Reykjavík, Iceland

S\u00fdning | Jar\u00f0tenging \u2013 Grounded
Tue, 03 Feb at 10:00 am Sýning | Jarðtenging – Grounded

Borgarbókasafnið Spönginni

Reykjavík is Happening!

Never miss your favorite happenings again!

Explore Reykjavík Events