Advertisement
Það er okkur sönn ánægja að bjóða þér til útgáfuhófs í tilefni þess að bókin Sálfræði peninganna eftir Morgan Housel er LOKSINS komin út á íslensku. Viðburðurinn hefst kl. 17:00 í Pennanum Eymundsson í Smáralind - boðið verður upp á drykkjarföng og léttar veitingar auk þess sem bókin fæst á sérstökum útgáfu-afslætti. Kl. 17:30 munu þýðendur bókarinnar, hjónin Georg Lúðvíksson og Kristrún Tinna Gunnarsdóttir, halda stutta kynningu um íslenskt samhengi bókarinnar og hvers vegna þau telja bókina þá bestu, aðgengilegustu og þýðingarmestu um fjármál sem skrifuð hefur verið í áratugi.
Þýðing bókarinnar var að þeirra frumkvæði en þau eiga persónuleg fjármál að sameiginlegu áhugamáli. Georg, sem var einn stofnenda Meniga, hefur getið sér gott orð sem einn helsti álitsgjafi landsins í fjármálum heimilanna. Kristrún hefur ennfremur starfað við fjármál um árabil og var ein af aðalhöfundum hvítbókar um framtíð íslenska bankakerfisins sem mikið hefur verið vísað til síðan hún kom út árið 2019.
Þetta er ekki bók um hvernig á að ná árangri í fjárfestingum og „sigra markaðinn“ eða verða ríkur á einni nóttu. Þetta er bók um hegðun, viðhorf og sjálfsþekkingu – og þar af leiðandi um hvernig við getum tekið betri og meðvitaðri ákvarðanir. Bókin hefur hlotið einróma lof víða um heim og selst í yfir átta milljónum eintaka síðan hún kom fyrst út fyrir sléttum fimm árum.
---
„Frábær bók sem hittir naglann á höfuðið. Við greiningu á samtímanum og framtíðinni skipta viðhorf og tilfinningar gagnvart efnahagslegum stærðum oft meira máli en rökréttir útreikningar.“—BERGUR EBBI
„Mjög aðgengileg bók sem útskýrir á fjölbreyttan hátt eðli peninga. Öll geta tengt við skemmtilegar dæmisögur, óháð bakgrunni og menntun. Bók sem hjálpar okkur að skilgreina hvað felst í okkar eigin auðlegð.“—ÁSTA FJELDSTED, Forstjóri Festi
„Þessi bók á sérstaklega mikið erindi við íslenska lesendur og ætti að vera skyldulesning fyrir alla þá sem vilja ekki bara taka upplýstar fjármálaákvarðanir heldur líka láta sér líða vel með þær.“—BJÖRN BERG, Fjármálaráðgjafi og höfundur bókarinnar Peningar
„Þessi bók er á „lesa-aftur“ listanum mínum. Ég naut þess að lesa hana og vænti þess að bókin haldi áfram að veita mér ánægju.“—TIM FERRISS, Stjórnandi hlaðvarpsins „The Tim Ferriss Show“, fjárfestir og höfundur fimm#1 metsölubóka New York Times og Wall Street Journal
„Reynsla okkar hefur kennt okkur að óháð því hvar í heiminum við erum, þá eru mannlegir þættir fjármála alltaf í grunninn þeir sömu. Þessi bók náði því strax athygli okkar – hún talar beint inn í okkar eigin áhugasvið og þá reynslu sem við höfum öðlast í gegnum árin. Vinir og vandamenn hafa þurft að þola ýmsar tilvitnanir í bókina og hvatningu til að lesa hana síðan hún kom út fyrir fimm árum – einfaldlega því að okkar mati er bókin uppfull af visku sem á erindi við okkur öll." - þýðendur bókarinnar Georg Lúðvíksson og Kristrún Tinna Gunnarsdóttir
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Penninn Eymundsson, Smáralind, Álfheimar 74, 104 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland