Qigong: Meiri orka og gleði - minna stress og dýpri heilun

Sat Oct 04 2025 at 10:00 am to 05:00 pm UTC+00:00

Leiðin heim - Holistic healing center | Reykjavík

Qigong l\u00edfsorka og gle\u00f0i
Publisher/HostQigong lífsorka og gleði
Qigong: Meiri orka og gle\u00f0i - minna stress og d\u00fdpri heilun
Advertisement
👉 Viltu auka orku, gleði og losa um streitu?
Við lærum einfaldar mjúkar Qigong hreyfingar, djúpa öndun og nærandi hugleiðslu sem endurnýja orku líkamans og styrkja bæði líkamlega og andlega heislu.
Qi (Chi) er lífsorkan. Í 5.000 ár hafa Kínverjar stundað Qigong til heilsueflingar og til lækninga.
Í æfingunum er áhersla á brosið og jákvæðni. Við tökumst betur á við erfiðar tilfinningar, s.s. sorg, reiði, stress og ótta. Æfingarnar eru mjög heilandi, opna á orkubrautirnar, losa um spennu, styrkja ónæmiskerfið og alla innri starfsemi líkamans.
Við höfum orku til að njóta lífsins enn betur.
Þorvaldur Ingi Jónsson mörg undanfarin ár haldið fjölda Qigong námskeiða og leiðir æfingarnar.Hann hefur undanfarin 15 ár sótt námskeið hjá mörgum Qigong meisturum. Hann er einn höfunda íslensku Qigong bókarinnar, Gunnarsæfingarnar.
Námskeiðið verður í glæsilegum sal, Leiðin heim, Laugavegi 178, 3 hæð (við upphaf Bolholts - Inngangur vinstra megin við Reykjavik Foto - rétt fyrir ofan gömlu Shell bensínstöðina).
Með námskeiðinu fylgir stuðningur á netinu í 180 daga.
Te, kaffi og léttar veitingar fylgja yfir daginn.
Flest fyrirtæki og stéttarfélög styrkja heilsueflingu.
Takmarkaður fjöldi
Senda skráning eða fyrirspurn á Þorvald, netfang [email protected]
Staðfesta bókun með 10.000 kr. greiðslu á reikning 525-26-870 660393-3159 Þor ehf.
Heildarverð: 18.900 kr. Ef tveir eða fleiri saman þá 2.000 kr. afsláttur.
Meðmæli:
Frú Vigdísi Finnbogadóttur fv. forseta „... Af eigin reynslu er mér ljúft að mæla með Þorvaldi sem frábærum leiðbeinanda fyrir þá sem hafa huga á að kynna sér Qigong til að viðhalda góðri lífsorku og efla jákvæða lífsafstöðu" Sjá hér viðtal við Vigdísi frá árinu 2022

Edda Björgvinsdóttir, leikkona: Ég er með brosandi hjarta og uppfull af gleði eftir dásamlegt Qigong námskeið hjá Þorvaldi Inga. Ég hef bætt við fjölmörgum verkfærum í verkfæratöskuna mína til að stuðla að auknu heilbrigði, liðleika og meira orkuflæði.
Takk innilega fyrir mig.
Ingibjörgar Kr. Ferdinands markþjálfa og jógakennara hjá Ljósinu endurhæfingu fyrir krabbameinsgreinda og Hæfi endurhæfingarstöð.
🥰
"Ég mæli heilshugar með þessum einstöku Qigong námskeiðum Þorvaldar Inga.
Ef þú vilt leysa gleðina enn betur úr læðingi innra, finna mun á lífsorkunni þinni og baða þig í innra jafnvægi og tengjast kjarnanum þínum enn dýpra þá myndi ég ekki hugsa mig tvisvar og fara á næsta námskeið! 💚💫
Virkilega falleg nálgunin á síðari deginum þar sem Þorvaldur kennir leiðir til sjálfsheilunar. 💫 Ég ætla að njóta þess að hafa Qigong sem hluta af mínu daglega lífi".
💞
Jóhanna Lárusdóttir ferða leiðbeinandi hjá Travel Uninterrupted
Í september 2023 tók ég þátt í þessu dásamlega námskeiðum. Fyrir námskeiðið taldi ég mig hugsa nokkuð vel um líkama og sál, en þetta námskeið var ótrúlega lærdómsríkt og áhrifamikið. Námskeiðið hófst á afskaplega fróðlegum fyrirlestri. Ég sá ekki eftir að hafa tekið báða dagana því seinni daginn var farið enn dýpra í fræðin. Ég átti ekki von á því að verða svona heilluð og finna strax áhrifamátt Qigong. Einnig er mikill stuðningur í þeim gögnum sem fylgja námskeiðinu. Strax eftir námskeiðið upplifði ég frelsi og svo mikla gleði. Mér fannst ég sjá lífið í bjartara og betra ljósi. Mér fannst ég öðlast orku og kraft til að stuðla að eigin velferð og hamingju. Líf okkar er einstakt, við eigum bara einn líkama og það er mikilvægt að fara vel með hann. Mér finnst dásamlegt að geta hlúð að líkama og sál með Qigong lífskrafti.
Eggert Kaaber leikari og kennari: https://www.facebook.com/Qigonglifsorka/videos/1187907191627710
Herdísar Pálu Pálsdóttur, fyrirlesari og fv. mannauðsstjóri: Eftir að hafa lengi vitað af Þorvaldi og Qigong æfingum undir hans stjórn fengum við hann með stutt innlegg og nokkrar æfingar á starfsdag í vinnunni og var mjög mikil ánægja með hann og æfingarnar. Þetta atriði byggði upp góða orku og gleði fyrir daginn.
Í framhaldinu skellti ég mér á námskeið hjá Þorvaldi og get svo sannarlega mælt með því. Góð blanda hreyfingar, öndunar og hugleiðslu er frábær til að styðja við góða andlega og líkamlega heilsu og spekin á bak við Qigong styður vel við heilbrigða og jákvæða lífsafstöðu
Skráning og nánari upplýsingar veitir Þorvaldur, netfang [email protected]
Advertisement

Event Venue & Nearby Stays

Leiðin heim - Holistic healing center, Bolholt 4, 105 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland

Sharing is Caring:

More Events in Reykjavík

Darcy Oake 3. okt\u00f3ber \u00ed Eldborg, H\u00f6rpu
Fri, 03 Oct at 08:00 pm Darcy Oake 3. október í Eldborg, Hörpu

Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús / Harpa Concert Hall and Conference Centre

COSMIC CODEX X \u2013 1ST ANNIVERSARY WITH BLAZEJ MALINOWSKI & YAGYA
Fri, 03 Oct at 08:00 pm COSMIC CODEX X – 1ST ANNIVERSARY WITH BLAZEJ MALINOWSKI & YAGYA

White Lotus Venue - Iceland

Baby Driver - F\u00f6studagspart\u00eds\u00fdning!
Fri, 03 Oct at 09:00 pm Baby Driver - Föstudagspartísýning!

Hverfisgata 54, 101 Reykjavík, Iceland

Dj Simmi \u00ed 12 T\u00f3num
Fri, 03 Oct at 09:00 pm Dj Simmi í 12 Tónum

12 Tónar

JAGODZIANKI WEEKEND AT DEIG
Sat, 04 Oct at 07:00 am JAGODZIANKI WEEKEND AT DEIG

Tryggvagata 14, 101 Reykjavík, Iceland

Pound PRO training, Reykjav\u00edk Iceland
Sat, 04 Oct at 09:00 am Pound PRO training, Reykjavík Iceland

Heilsuklasinn

\u00c1lfastund
Sat, 04 Oct at 10:15 am Álfastund

Hjálmaklettur Menningarhús

Mar\u00eda Magdalena og frumkristnin. Fyrirlestur og h\u00e1degisver\u00f0ur. 4 okt.
Sat, 04 Oct at 11:00 am María Magdalena og frumkristnin. Fyrirlestur og hádegisverður. 4 okt.

Óðinsgata 1, 101 Reykjavík, Iceland

Iceland Liberty Summit
Sat, 04 Oct at 11:00 am Iceland Liberty Summit

Reykjavik Iceland

Laugardagar eru fj\u00f6lskyldudagar
Sat, 04 Oct at 11:00 am Laugardagar eru fjölskyldudagar

Dalbraut 1, 300 Akranes, Iceland

Skapandi smi\u00f0ja | Armb\u00f6nd
Sat, 04 Oct at 12:00 pm Skapandi smiðja | Armbönd

Borgarbókasafnið Úlfarsárdal

Reykjavík is Happening!

Never miss your favorite happenings again!

Explore Reykjavík Events