Advertisement
Rómantísk hrollvekja um vináttu og veður!Hópur ungskálda bíður af sér óvenjulegan sumarstorm í sveitasetri við Genfarvatn. Þau drepa tímann með ýmsum óhugnaði en þetta kvöld er eitthvað annað og meira sem ásækir þau en bara skáldskapur.
Hinn umtalaði leikhópur Marmarabörn snýr aftur á svið með síðasta hluta hamfara-þríleiks síns. Fyrri sýningar hópsins, Að flytja fjöll í þremur atrennum og Eyður, hlutu mikið lof áhorfenda og gagnrýnenda og hafa verið sýndar víða um heim. Marmarabörn stefna saman tilraunamennsku og hefðum leikhúsformsins til þess að setja á svið tímalausar sögur á áhrifaríkan og leikandi hátt.
Árið án sumars er ögrandi sjónarspil innblásið af raunverulegum atburðum sem áttu sér stað árið 1816 sem er betur þekkt sem árið án sumars. Höfuðskáld Rómantíkurinnar ætluðu sér að sleikja sólina við Genfarvatn en þurftu oft að verja tíma innandyra vegna veðurs því eldgos hinum megin á hnettinum hafði valdið óvenjulegu gjörningaveðri. Ýmis bókmenntaverk urðu til í þessari afdrifaríku sumardvöl, þar má nefna Frankenstein eftir Mary Shelley, Vampíruna
(e. The Vampyre) eftir John Polidori og sum þekktustu ljóð Byrons lávarðar.
Eins og þegar Viktor Frankenstein horfðist í augu við skelfilegt sköpunarverk sitt eða líkt blóðþyrstri vampíru sem svífur á fórnarlamb, stöndum við nú líka andspænis ógurlegri afturgöngu: afleiðingum gjörða okkar í formi loftslagsbreytinga.
Höfundur og leikstjórn
Leikhópurinn Marmarabörn
Leikmynd og búningar
Guðný Hrund Sigurðardóttir
Tónlist
Gunnar Karel Másson
Dramatúrg
Igor Dobricic
Aðstoðarleikstjórn
Birnir Jón Sigurðsson
Framkvæmdarstjórn
Kara Hergils, MurMur Productions
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Borgarleikhúsið, Listabraut 3,Reykjavík, Iceland
Tickets