Advertisement
🎉 Þorrablót 113 🎉📅 Miðasala á Þorrablót 113 hefst á föstudaginn kl. 10:00! 🎉
Eftir að hafa farið aðeins betur í saumanna á fyrra formi um að selja miða í Framheimilinu 2. nóv - hefur nefndin ákveðið að snúa við og breyta plani. Því biðjum ykkur um að lesa póstinn vandlega.
Allir sem vilja tryggja sér borð á þessum stórskemmtilega viðburði eru beðnir um að senda póst á [email protected] með eftirfarandi upplýsingum: Athugið: Miðasala opnar 10.00, föstudaginn 1. nóv. Allar beiðnir sem sendar verða fyrir 10.00 á föstdaginn verða ógildar og fá ekki svar.
Fram þarf að koma:
Nafn:
Kennitala:
Sími:
Netfang:
Fjöldi borða:
📌📌Athugið: Ekki verður hægt að velja ákveðið/ákveðin borð. Allir sem senda inn pöntun fá svarpóst með borðanúmeri/um sem viðkomandi hefur tryggt sér, auk reikningsupplýsinga. Pöntunin er staðfest þegar greiðsla hefur borist innan klukkutíma frá því að svarpósturinn er sendur. Ef greiðsla berst ekki innan tímarammans, fer borðið/borðin aftur í sölu.
kv. Nefndin
Síðustu tvö ár hefur orðið uppselt á 5 tímum!
🍾Í ár verða aðeins 12 manna borð í boði (Það munu ekki fleiri komast við hvert borð)
📅 Húsið opnar: 18:30 og lokar kl. 19:30 – Opnar aftur fyrir ball kl. 22:00!
Steindi og Auddi sjá um að stýra veislunni, Bandmenn halda ballinu gangandi og Jóhanna Guðrún flytur sín bestu lög🎶
En það er ekki allt – Aron Can mætir á svæðið og fer aldrei heim, aldrei heim! 🎤🔥
🍽️ Múlakaffi sér svo um að allir fái að halda þorrann hátíðlegan!
Vertu með á Þorrablóti 113 og upplifðu geggjaða kvöldstund!
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Úlfarsabraut 126, 113 Reykjavík, Iceland, Úlfarsbraut 126, 113 Reykjavíkurborg, Ísland,Mosfellsbær, Reykjavík, Iceland