Yoga Moves & Paradísa

Sat Apr 05 2025 at 08:00 pm to 10:00 pm UTC+00:00

Skeifan 7, 108 Reykjavík, Iceland | Reykjavík

Yoga Moves
Publisher/HostYoga Moves
Yoga Moves & Parad\u00edsa *english below
FINNST ÞÉR GAMAN AÐ DANSA?
Yoga Moves eru kraftmiklir og skemmtilegir yoga, dans og hugleiðslu viðburðir í nærveru plötusnúðs sem spilar seyðandi tóna og dansvæna raftónlist. Einstök, frelsandi upplifun, heilbrigð útrás og endurnæring fyrir líkama, huga og sál. Viðburðurinn fer fram í fallegu rými með öflugu hljóðkerfi!
Tómas Oddur yoga og dansþerapisti, forsprakki Yoga Moves og jafnframt gestgjafi viðburðarins, leiðir studina eins og honum einum er lagið.
Paradísa sér um tónlistina að þessu sinni. Paradísa (Dísa) hefur alltaf haft ástríðu fyrir tónlist og byrjaði 9 ára að spila á gítar og semja lög. Hún hefur átt litrík líf og starfaði sem íþróttafræðingur og jógakennari í sex ár en eftir alvarlegt slys, sem breytti lífi hennar, fann hún nýja leið til að tjá sig í gegnum DJ-sett. Þrátt fyrir að hafa byrjað nýlega hefur hún risið hratt í senunni og farin að spila mikið í miðbænum og á erlendum vettvangi. Hún blandar saman fjölbreyttum stefnum og skapar ógleymanlega stemningu fyrir dansþyrsta tónlistarunnendur.
Verð: 6.900 kr.
Hvenær Laugardagskvöld 05.04.25 Kl. 20:00 - 22:00
Hvar: Yoga Shala Reykavík, Skeifunni 7
SÆKJA MIÐA: https://repeat.is/repeat_checkout/10900089-7cbb-4fb8-946f-f6560728ad1f/?products.0.uuid=263b7df2-5077-477e-9a12-1113cdcf3034&products.0.quantity=1&currency=ISK&language=is&name=&email=&phone=&ssid=&town=&street=&postal_code=
Hvað er YOGA MOVES?
Yoga Moves er leiddur jógaflæði tími með dansi í nærveru plötusnúðs. Boðið er upp á öndun, hugleiðslu og jógaflæði við seyðandi ambient tónlist sem byggist upp jafnt og þétt. Þegar hámarkinu er náð er stigið út af mottunni og taka þá við skemmtilegar hópeflisæfingar og frjálst dans partý.. Við fáum til okkar helstu plötusnúða Íslands og í danshlutanum er ýmist spilað disco, house, tech house, drum&base eða techno. Tímarnir ganga út á að tengjast sjálfum sér, losa um spennu, hreyfa líkamann á skapandi og taktvissan hátt, fara aðeins út úr þægindarammanum, tengjast öðrum og hafa gaman saman í allsgáðu ástandi. Yoga Moves var stofnað í febrúar árið 2014 af Tómasi Oddi Eiríkssyni og hefur notið mikilla vinsælda síðan. Haldnir hafa verið fjölmargir viðburðir í gegnum árin, víðsvegar um landið og erlendis, t.d á Dansverkstæðinu, Gamla Bíói, Hörpu, Austurvelli, Hofi-Akureyri, Verboten klúbb í NYC, Móment DJ Margeirs á menningarnótt við Klapparstíg og auðvitað Yoga Shala Reykjavík.
BIO: Tómas Oddur Eiríksson líkamsþerapisti sem er með bakgrunn úr sviðslistum og mannvistarlandfræði og býr yfir 12 ára reynslu sem yoga, dans og hugleiðslu kennari, hefur haldið marga viðburði, námskeið, einkatíma, fyrirlestra og samkomur sem tengjast hreyfingu og andlegri heilsu. Leiðir hann iðkendur inn í líkamlega nútvitund af mikilli innlifun, hlýju, húmor og gleði. Tómas er einnig lærður markþjálfi, thai yoga nuddari og hefur lokið viðamikilli menntun í yogakennslufræðum (500+ klst Level 1 & 2 ásamt fjölmörgum vinnustofum og námskeiðum víða um heim). Þá tók Tómas virkan þátt í uppbyggingu Yoga Shala Reykjavík undanfarin ár og er forsprakki Yoga fyrir Stirða Stráka ásamt Yoga Moves sem nú fagnar 10 ára starfsafmæli. Yoga Moves eru viðburðir með leiddu yoga, frjálsum dansi og hugleiðslu með lifandi tónlist og/eða plötusnúð. Tómas fer reglulega í fyrirtækjaheimsóknir með heildrænt hópefli og leiðir yoga og dans á stærri viðburðum eins og Moment á Menningarnótt hjá DJ Margeir.
Tómas hefur einstak lag á að kalla fram það besta í fólki og fá það til að sleppa sér í gleði og dansi. Nýlega lauk Tómas meistaranámi í Dance Movement Pshychotherapy við UAB háskólann í Barcelona sem er skapandi og líkamsmiðuð sálfræðimeðferð.
*english
Do you like to DANCE?
Welcome to Yoga Moves, a fun & upbeat gathering full of inspiration, yoga, movement, dance, top DJ set and great vibes, followed by a deep relaxation. A wholesome activity and unique experience in a beautiful space with a high quality sound system!
Tómas Oddur yoga & dance movement therapist is the creator and host of this event.
The DJ for this even will be Paradísa (Dísa). Paradísa has always had a passion for music and started playing the guitar and writing songs at the age of 9. She has had a colorful life and worked as a sports psychologist and yoga teacher for six years, but after a serious accident that changed her life, she found a new way to express herself through DJ sets. Despite having started recently, she has risen quickly in the scene and has started playing a lot in the city center and abroad. She mixes diverse trends and creates an unforgettable atmosphere for dance-hungry music lovers.
Admission: 6900 ISK
When: Saturday 05.04.25 08:00pm - 10:00pm
Where: Yoga Shala Reykjavík, Skeifan 7
GET TICKET: https://repeat.is/repeat_checkout/10900089-7cbb-4fb8-946f-f6560728ad1f/?products.0.uuid=263b7df2-5077-477e-9a12-1113cdcf3034&products.0.quantity=1&currency=ISK&language=is&name=&email=&phone=&ssid=&town=&street=&postal_code=
What is YOGA MOVES?
Yoga Moves is a guided vinyasa yoga flow class in the presence of a DJ. Classes always start with a few words of inspiration, meditation and breathing. As the yoga reaches climax we step off the matt and move and groove to deep beats and a powerful sound system. Many of Iceland's most respected DJ's play in Yoga Moves on a regular basis. It's all about connecting to the body, letting go of tension, moving and expressing ourselves creatively, stepping out of the comfort zone, connecting to each other and having healthy fun together. Yoga Moves was founded in February 2014 by Tómas Oddur Eiríksson and has been popular in Iceland ever since. Through the years there have been many events at the Reykjavik Dance Atelier, Gamla Bio, Harpa, Austurvöllur main square, Hof-Akureyri, DJ Margeir's Moment on Culture night and of course at Yoga Shala Reykjavík.

Event Venue

Skeifan 7, 108 Reykjavík, Iceland, Skeifan 7, 108 Reykjavíkurborg, Ísland,Reykjavík, Iceland

Tickets

Sharing is Caring:

More Events in Reykjavík

P\u00f3st-J\u00f3n sn\u00fdr aftur
Fri, 04 Apr, 2025 at 08:00 pm Póst-Jón snýr aftur

Þjóðleikhúsið

Mamma Mia! Syngjum saman! - F\u00f6studagspart\u00eds\u00fdning!
Fri, 04 Apr, 2025 at 09:00 pm Mamma Mia! Syngjum saman! - Föstudagspartísýning!

Hverfisgata 54, 101 Reykjavík, Iceland

H\u00c1DEGIST\u00d3NLEIKAR \/ Matin\u00e9e - Bj\u00f6rn Steinar S\u00f3lbergsson orgel \/ organ
Sat, 05 Apr, 2025 at 12:00 pm HÁDEGISTÓNLEIKAR / Matinée - Björn Steinar Sólbergsson orgel / organ

Hallgrímstorg 1, 101 Reykjavík, Iceland

Byggingarnar okkar - smi\u00f0jur fyrir b\u00f6rn \u00e1 H\u00f6nnunarMars
Sat, 05 Apr, 2025 at 12:00 pm Byggingarnar okkar - smiðjur fyrir börn á HönnunarMars

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs

Meiri l\u00edfsorka og gle\u00f0i - Qigong: Grunnur a\u00f0 g\u00f3\u00f0ri heilsu og hamingju
Sat, 05 Apr, 2025 at 01:00 pm Meiri lífsorka og gleði - Qigong: Grunnur að góðri heilsu og hamingju

Leiðin heim - Holistic healing center

\u00c1rsh\u00e1t\u00ed\u00f0 TS\u00cd
Sat, 05 Apr, 2025 at 06:00 pm Árshátíð TSÍ

Club Sólon

ABBA DANCING QUEENS - Hei\u00f0urst\u00f3nleikar
Sat, 05 Apr, 2025 at 09:00 pm ABBA DANCING QUEENS - Heiðurstónleikar

Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús / Harpa Concert Hall and Conference Centre

Nirvana | Nevermind | Rokkmessa
Sat, 05 Apr, 2025 at 09:00 pm Nirvana | Nevermind | Rokkmessa

IÐNÓ

5 \u00e1ra afm\u00e6li Beint \u00ed b\u00edlinn
Sat, 05 Apr, 2025 at 09:00 pm 5 ára afmæli Beint í bílinn

Háskólabíó

House of Revolution vol. 8 "AND...SEEN!"
Sat, 05 Apr, 2025 at 09:00 pm House of Revolution vol. 8 "AND...SEEN!"

Þjóðleikhúsið

Coast Care Sundays - Take on the 2025 Cleanup Challenge
Sun, 06 Apr, 2025 at 11:00 am Coast Care Sundays - Take on the 2025 Cleanup Challenge

Reykjanes Peninsula

II D\u00fdpri Qigong l\u00edfsorka, heilun og gle\u00f0i - Losum um spennu og erfi\u00f0ar tilfinningar
Sun, 06 Apr, 2025 at 01:00 pm II Dýpri Qigong lífsorka, heilun og gleði - Losum um spennu og erfiðar tilfinningar

Leiðin heim - Holistic healing center

Reykjavík is Happening!

Never miss your favorite happenings again!

Explore Reykjavík Events