Advertisement
Kvennanefnd Sameinuðu þjóðanna fundar á hverju ári í höfuðstöðvum þeirra í New York til þess að setja markmið fyrir heiminn varðandi kynjajafnrétti, fara yfir það sem hefur áunnist í jafnréttisbaráttunni og til þess að hvetja ríkisstjórnir til að grípa til aðgera í þágu réttinda allra kvenna og stúlkna.Íslensk sendinefnd fer á fundinn á hverju ári á vegum stjórnvalda og frjálsum félagasamtökum er boðin þátttaka í sendinefndinni sem mörg þiggja. Á þessum upplýsingafundi um 70. fund kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna sem fram fór í mars á þessu ári miðla þátttakendur á Kvennanefndarfundinum því helsta sem þau komust að á fundinum, stöðu jafnréttismála í heiminum og á vettvagni Sþ og helstu áskorunum jafnréttisbaráttunnar framundan, eins og þær birtust á fundinum.
Fundastjóri: Tatjana Latinovic, formaður Kvenréttindafélags Íslands
Dagskrá fundar
17.05 Ávarp/opnun: Stella Samúelsdóttir, framkvæmdastjóri UN Women á Íslandi
17.10 CEDAW, Peking og CSW - Kristín Ástgeirs
17.25 Niðurstöður CSW70 - Dómsmálaráðuneyti
17.40 Innlegg frá frjálsum félagasamtökum
18.00 Umræður
Advertisement
Event Venue
Hannesarholt, Grundarstígur 10, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.











