Advertisement
Viðskiptaþing 2025 fer fram 13. febrúar í Borgarleikhúsinu og er einn stærsti viðburður ársins í íslensku viðskiptalífi.Yfirskrift þingsins í ár er „Forskot til framtíðar.“ Þar verður sjónum beint að því hvernig Ísland getur byggt á þeim framförum sem Ísland hefur skapað sér þrátt fyrir áföll síðastliðinna ára. Horft verður til framtíðar og teiknuð upp metnaðarfull framtíðarsýn um hvernig Ísland geti skapað sér ný forskot og undirbyggt þannig stórfellda lífskjarasókn á komandi árum.
Fyrirlesarar þingsins verða bæði erlendir og innlendir og koma af sviðum fræðimennsku, opinbera geirans og einkageirans. Þeir munu meðal annars fjalla um efnahagslegt frelsi, hagkvæmni í opinberum rekstri og verðmætasköpun.
Fyrirlesarar þingsins eru eftirfarandi:
- Johan Norberg, rithöfundur og fræðimaður
- Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri í Kópavogi
- Róbert Wessman, forstjóri og stjórnarformaður Alvotech
- Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra
- Andri Þór Guðmundsson, formaður Viðskiptaráðs
Þátttakendur í pallborði eru eftirfarandi:
- Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra og þingmaður Viðreisnar
- Hildur Sverrisdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins
- Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins
Miðasala er í fullum gangi á tix.is
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Borgarleikhúsið, Listabraut 3, 103 Reykjavíkurborg, Ísland,Reykjavík, Iceland
Tickets