Advertisement
Hallur er fimm ára drengur sem fæddist með Spina Bifida, Hydrocephalus og Chiari malformation II fæðingargalla sem hafa áhrif á taugakerfið og krefjast mikillar læknisumönnunar. Við þriggja ára aldur greindist hann einnig með flogaveiki.Á sinni stuttu ævi hefur hann gengið í gegnum fjölmargar aðgerðir, þurft að dvelja langdvölum á spítala og verið í reglubundnu eftirliti hjá læknum og öðrum fagaðilum.
Þrátt fyrir miklar hindranir hefur Hallur mikla lífsgleði. Hann er ákveðinn, hlýr og góður drengur sem sér alltaf það besta í fólki. Hann lætur hjólastólinn ekki stoppa sig og gerir allt sem hann ætlar sér. Hann á sér stóra drauma um að verða sjúkraflutningamaður, lögreglumaður og bílaviðgerðamaður.
Hallur hefur kennt okkur að það sem skiptir mestu máli er ekki hvað mætir manni heldur hvernig maður mætir því.
Tónleikarnir eru haldnir til að styðja Hall og fjölskyldu hans í þessum krefjandi aðstæðum. Það er fyrirséð að fjölskyldan þarf ýmsan sérhæfðan búnað og tæki á næstunni og má þar nefna sérútbúinn bíl og einnigað þarf að hjólastóla væða heimilið.
Vinir Halls og fjölskyldu hans ætla því að blása til styrktartónleika og reyna þannig að leggja þeim lið því það er erfitt að þurfa að hafa fjárhagsáhyggjur ofan á allt annað sem fjölskyldan þarf að takast á við.
Við hvetjum ykkur til að koma og leggja þessu kærleiksríka verkefni lið og um leið að hlýða á frábæra listamenn.
Fram koma:
Ásta Marý Stefánsdóttir
Björgvin Þór Þórarinsson
Flosi Einarsson
Hallgrímur Ólafsson
Hallur Flosason
Hanna Þóra Guðbrandsdóttir
Heiðmar Eyjólfsson
Hulda Gestdóttir
Jóna Margrét
Jónína Erna Arnardóttir
Katrín Valdís Hjartardóttir
Sylvía Þórðardóttir
Rósa Guðrún Sveinsdóttir
Valgerður Jónsdóttir
Hljóðmaður:
Sigurður Ingvar Þorvaldsson
Ljósmyndir/upptaka:
Jón Gautur Hannesson
Hönnun plakats/auglýsingu:
Sentio, Jeremi Zyrek
Miðasala
midix.is
Einnig er hægt að leggja verkefninu lið með því að leggja inn á Menningarfélagið Bohéme sem heldur utan um viðburðinn
kt:6802190600
0552-14-000155
Allur ágóðinn rennur óskertur til Halls og fjölskyldu hans
🩷🖤
Gaman að segja frá því að uppáhalds litirnir hans Halls eru bleikur og svartur og því tilvalið að mæta í bleiku og svörtu á Tónleikana
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Tónberg, Reykjavík, Iceland