Advertisement
HádegistónleikarÁ ljúfum nótum í Fríkirkjunni
fimmtudaginn 9. október
Ljúfa mær - Íslensk og erlend þjóðlög
Flytjendur:
Sigríður Ósk Kristjánsdóttir, mezzosópran
Guðrún Dalía, píanóleikari
Um dagskrána:
Þjóðlög hafa alltaf heillað þær Sigríði Ósk og Guðrúnu Dalíu. Þær hafa sett saman dagskrá sem inniheldur grípandi og falleg þjóðlög sem tengjast ást konu á mismunandi æviskeiðum og má þar nefna móðurástina sem kemur fram í gullfallegum vöggukvæðum, nýja ást í leikandi og spennandi ástsarsöngvum og ástarsorgina. Við heyrum raddir kvenna, m.a. frá Íslandi, Spáni, Englandi og Slóvakíu. Lögin eru útsett af tónskáldum eins og Jóni Ásgeirssyni, Manuel De Falla, Ferdinand Rauter, Benjamin Britten og Béla Bartók.
Tónleikarnir fara fram í Fríkirkjunni við Tjörnina og eru hluti af tónleikaröðinni Á ljúfum nótum í Fríkirkjunni.
Tónleikarnir hefjast kl. 12 og taka um hálfa klukkustund.
Aðgangseyrir 2.000 kr.
Ath. ekki er tekið við greiðslukortum.
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Fríkirkjan við Tjörnina, Fríkirkjuvegi 5,Reykjavík, Iceland